Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Það sem gefst best í lífinu er að gefast aldrei upp.

 

Vefir aðildarfélaga
2. janúar 2012
UMF Skipaskagi óskar félagsmönnum sínum og velunnurum gleðiríks árs og farsældar á nýju ári. Þökkum sérstaklega góðar óskir á 50 ára afmælinu. Hlökkkm til að sjá ykkur á æfingum og mótum árið 2012. Íslandi allt ! Jófríður Ísdís Skaftadóttir var valinn íþróttamaður USK 2011. Jófríður setti nokkur íslandsmet á árinu í kringlukast með verulegri bætingu og varð íslandsmeistari innan og utanhúss í kúluvarpi. Einnig voru dansararnir okkar að gera góða hluti og eignuðumst við Skagamenn marga íslandsmeistara þar. Til hamingju öll. Sjáumst á þrettándanum !
18. október 2011
Helga Guðrún Guðjónsdóttir var endurkjörin formaður UMFÍ til næstu tveggja ára á 47. Sambandsþingi UMFÍ sem lauk á Akureyri í gærkvöldi. Sex einstaklingar voru kosnir í stjórn. Nýir inn í aðalstjórn UMFÍ eru Stefán Skafti Steinólfsson, Ungmennafélaginu Skipaskaga, Haukur Valtýsson, Ungmennafélagi Akureyrar, Jón Pálsson, Ungmennasambandi Kjalarnesþings og Bolli Gunnarsson Héraðssambandinu Skarphéðni. Þær Björg Jakobsdóttir og Eyrún Harpa Hlynsdóttir voru endurkjörnar. Í varastjórn koma inn ný þau Baldur Daníelsson, Héraðssambandi Þingeyinga og Matthildur Ásmundardóttir Ungmennasambandinu Úlf...
14. október 2011
47 sambandsþing UMFÍ verður haldið í menningarhúsinu Hofi á Akureyri um helgina. Samtals eiga 135 fulltrúar rétt til setu á þinginu frá 18 héraðssamböndum og 10 félögum með beina aðild líkt og okkur hjá USK. Forseti Íslands,Ólafur Ragnar Grímsson mun ávarpa þingið. Einnig mun Mogens Kirkeby forseti ISCA sitja þingið. Sjá nánar á www.umfi.is Þess má geta að nokkur endurnýjun er á stjórn UMFÍ,og er okkar maður Skafti Steinólfsson gjaldkeri USK í framboði til vara/stjórnar.
11. september 2011
Æfingar eru eftirtalda daga: mánudaga,miðvikudaga,og fimmtudaga í Akraneshöll kl: 17:30-19:00. Föstudaga í Íþróttahúsi á Jaðarsbökkum frá 17:30-18:30. Þjálfarar eru Uche og Gyða og þjálfa þau í viku til skiftis. Æfingagjöld eru kr 8000 til áramóta (4 mán) og eftir áramót kr 10.þús til 1 ágúst. (7 mán) Sjáumst hress.
18. ágúst 2011
Jófríður Ísdís Skaftadóttir var eini keppandinn frá USK á Unglingalandsmóti UMFÍ. Hún keppti í kúluvarpi stúlkna 13 ára og fékk Gullverðlaun,kastaði 11.87 m. Hún sigraði einnig kringlukast 15 ára (keppti uppfyrir sig) kastaði 39,18 og setti unglingalandsmótsmet. Bætti það um tæpa 6 metra.
7. júlí 2011
Jófríður Ísdís Skaftadóttir keppti í kringlukasti á 21 stórmóti Gogga Galvaska í Mosfellsbæ um liðna helgi. Jófríður sigraði í flokki 13 ára og setti Goggamet,kastaði 600 gr kringlu 40,87 metra. Jófríður keppti einnig í Coca Cola móti FH á sunnudaginn og bætti íslandsmetið í sínum flokki um tæpa 2 metra. Kastaði 37,46. Gamla metið var 35,47. Nú er framundan Vesturlandsmót hjá Skipaskaga í Borgarnesi 6 og 7 Júlí. Keppni mun hefjast kl 18:00 þann 6 júlí og kl 19 þann 7. Þar mæta UDN,HSH,UMSB og USK/ÍA. Mætum í sólskinskapi og hvetjum okkar fólk.
29. júní 2011
Jófríður Ísdís keppti fyrir hönd USK á Meistaramóti Íslands 11-14 ára á Vík í Mýrdal um helgina. Hún keppti í kúluvarpi með 2 kg kúlu og hreppti gullverðlaun og setti íslandsmet í flokki 13 ára stúlkna 12,23 metra.
21. júní 2011
Í gær mánudag 20. júní kl. 17.45 gengu 20 manns í skipulagðri göngu UMF Skipaskaga á Guðfinnuþúfu. Skipaskagi tekur þátt í verkefni UMFÍ sem heitir Fjölskyldan á fjallið. Settum upp póstkassa með gestabók rétt ofan við Guðfinnuþúfu. Allir að skrifa í bókina, póstkassinn verður þarna fram í september en þá tökum við hann niður og gestabækurnar fara til UMFÍ og það verður dregið út nafn/nöfn sem get...