Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Ekki draga hlutina,  komdu þér strax að verki.

Vefir aðildarfélaga
21. apríl 2010
Asparmótið í sundi verður haldið sunnudaginn 16. maí í sundlaug Laugardals. upphitun kl 12 og mót kl 13. Keppt verður í 50 skrið, 25 frjálsri aðferð, 50 bringu, 50 bak, 50 flug, 100 skrið, 100 bringu og 100 fjór karla og kvenna Alls 16 greinar.
21. apríl 2010
Engar æfingar verða hjá Þjóti á sumardaginn fyrsta 22. apríl n.k. Gleðilegt sumar og takk fyrir veturinn. Sjáumst hress og kát í næstu viku. Bestu kveðjur frá stjórn og þjálfurum.
15. apríl 2010
sundæfing fellur niður hjá eldri hóp í dag. Verið er að þrífa laugina. kv. þjálfari
22. mars 2010
Greiðsluseðlar fyrir vorönn 2010 verða sendir út eftir páska. Foreldrar/forráðamenn Iðkenda Þjóts. 18 ára og yngri sem fengu senda ávísun frá Akraneskaupstað, vinsamlegast komið þeim sem fyrst til Soffíu gjaldkera
22. mars 2010
Góður árangur náðist á Íslandsmóti í sundi sem haldið var s.l. helgi í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Berent Karl Hafsteinsson s-8 náði í fern verðlaun. 3 BRONS og 1 SILFUR. Áslaug, Emma Rakel og Laufey María (allar í flokki s-14) stóðu sig einnig mjög vel og bættu sína tíma. Til hamingju með góðan árgangur.
22. mars 2010
Aðalfundur Þjóts verður haldinn þriðjudagskvöld 23. mars n.k. kl. 20. í Brekkubæjarskóla Stjórnin
20. mars 2010
Hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu á sunnudeginum kl 10 þar sem sýna á frá m.a. boccia, lyftingum og frjálsum. Slóðin er www.sporttv.is
20. mars 2010
Í dag og á morgun verður haldið Íslandsmót ÍF í boccia, sundi, bogfimi, frjálsum íþróttum, borðtennis og lyftingum. Alls eru skráðir 392 keppendur í 6 íþróttagreinum. Þjótur sendir 2 sveitir í boccia, 4 keppendur í sundi og 1 keppanda í frjálsum íþróttum slóð á heimasíðu ÍF til að fylgjast með gangi mála www.ifsport.is Staðsetning greina: Sund-Ásvallalaug í Hafnarfirði Boccia-Í aðalsal Laugardalshallar Frjálsar í frjálsíþróttahöllinni