Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

 

Vefir aðildarfélaga
17. maí 2012

Í sumar býður Sundfélag Akraness upp á sundnámskeið fyrir börn fædd 2006 í sundlauginni að Jaðarsbökkum.

 

Hver tími er 45 mínútur

 

1. námskeið 12.-18. júní  (5 skipti 3.500 kr)

2. námskeið 19.-29. júní  (9 skipti 6.000 kr)

 

Boðið er upp á að börnin séu sótt og þeim skilað á leikskólana.

Kennari: Hildur Karen Aðalsteinsdóttir

Allar nánari upplýsingar og skráning hildurkaren@sundfelag.com

14. maí 2012

Skriðsund er skemmtilegt og hratt sund sem gaman er að kunna.  Álag á bak og liði er minna en í bringusundi og um leið styrkir sundaðferðin axlir og bak.

 

Á námskeiðinu verður farið í grunnatriði skriðsundins, flot, öndun, líkamslegu, handatök og fótatök.

 

 Áhersla verður lögð á:

·         Flot og líkamslegu í vatninu

·         Öndun til hliðar

·         Samræmingu handa- og fótataka

 

Kennari: Hildur Karen Aðalsteinsdóttir.

14. maí 2012

Um helgina fór fram Landsbankamót ÍRB og átti Sundfélag Akraness nokkuð marga keppendur þar.

 

Á föstudeginum kepptu krakkar sem eru fæddir 2004 á sínu fyrsta stórmóti og stóðu sig mjög vel. Eftir keppni tóku þau þátt í skemmtilegum sjóræningjaleik og uppskáru þátttökuverðlaun í lokin.

 

Á laugardag og sunnudag kepptu sundmenn 9 ára og eldri og voru flestir að bæta sig. Krakkarnir unnu til margra verðlauna, það bættust við krakkar í AMÍ hópinn okkar og þeir sem voru þegar komnir með lágmörk bættu við sig fleiri greinum.

 

Skemmtilegt mót hjá vinum okkar í Reykjanesbæ.

 

Hægt er að skoða úrslit hjá 9 ára og eldri hér.

14. maí 2012

Á dögunum var haldið Íslandsmeistaramót í 5 km sundi í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Inga Elín Cryer tók þátt og sigraði á frábærum tíma 1:01.37,00.

Inga og sigurvegarinn í karlaflokki Anton Sveinn McKee úr Sundfélaginu Ægi (synti á 57.39,03) unnu sér inn keppnisrétt á Evrópumeistaramótinu í víðavatnssundi sem fer fram í Piombino á Ítalíu 12.-16. september.

14. maí 2012

Síðustu kleinusteikingu vetrarins hefur verið frestað um viku vegna þess að það skráðu sig of fáir. Sem sagt mánudaginn 21. maí kl 17:00 í Grundaskóla.
Koma svo og allir að skrá sig. Biðjum sérstaklega þá sem ekki hafa komist í vetur í steikingu um að mæta núna og hafa gaman af.
Okkur vantar enn 6 foreldra í steikinguna.
Ská sig hjá Katrínu yfirkleinu katrin@sundfelag.com eða gsm 8611404.

10. maí 2012

Nú vantar vaska foreldra til að steikja kleinur fyrir Akranesleikana því við seljum kleinur í sjoppunni okkar þá helgi.
Það verða bara nokkrir pokar til sölu á frjálsum markaði þannig að við biðjum ykkur um að selja EKKI kleinur fyrirfram.
Við ætlum að steikja mánudaginn 14. maí kl 17:00 í heimilisfræðistofunni í Grundarskóla.


Okkur vanta ca.10 foreldra, eins eru stálpaðir unglingar mjög velkomnir. Það eru vinsamleg tilmæli til þeirra foreldra sem einhverra hluta vegna hafa ekki getað mætt í kleinusteikingar vetrarins að gefa nú kost á sér.

Skráning hjá Katrínu Leifs, tölvupóstur katrin@sundfelag.com gsm 8611404.

10. maí 2012

Um síðustu helgi fór fram í Vestmannaeyjum Íslandsmeistaramót Garpa.

Sundfélag Akraness átti að þessu sinni einungis tvo keppendur, þá Alexander Eck og Vigni Barkarson, sem sópuðu að sér verðlaunum þrátt fyrir að hafa ekki verið alls kostar sáttir við tímana sína.

 

Vignir kom heim með 7 gullverðlaun en Alexander kom heim með 4 bronsverðlaun og 1 silfurverðlaun. 

7. maí 2012

Um helgina verður Landsbankamót ÍRB haldið í Reykjanesbæ.
Mótið er þrískipt. 8 ára og yngri keppa aðeins á föstudeginum, 9-12 ára keppa fyrir hádegi laugardag og sunnudag í 25 metra laug og 13 ára og eldri keppa eftir hádegi laugardag og sunnudag í 50 metra laug.
Mótið verður haldið í innilauginni í Vatnaveröldinni í Keflavík. Gisting og fæði er í Holtaskóla sem er við hlið laugarinnar. Laugardags- og sunnudagskeppendum verður boðið í bíó.
 
C hópur og Selir (fæddir 2003 og eldri) fara með bílum á föstudaginn, farastjórar og e-h foreldrar verða á bílum og geta krakkarnir fengið far og verðum við í sambandi með það þegar nær dregur hvenær við leggjum af stað frá Jaðarsbakkalaug. Foreldrar verða svo að ná í börnin á sunnudeginum að lokinni keppni.
 
B hópur fer á laugardegi og sjá þeir sjálfir um að koma sér á staðinn. Þau fá kvöldmat lau, morgunmat og hádegismat sunnudag.
                                           
Kostnaður við ferðina alla helgina er kr. 10.000. 
Innifalið í verðinu er: gisting og  fæði (2x morgunmatur,
2x hádegismatur, 2x kvöldmatur) og bíóferð ;-)
Systkinaafsláttur er 2.500 kr. fyrir sundmenn númer 2,3,4……
 
Siggerður gjaldkeri sendir svo póst á þá sem ekki eru alla helgina (lau-sun) og lætur vita um kostnað.
 
Þátttökugjald skal leggja inn á reikning SA, 0186-26-1677, kt. 630269-4239 og senda staðfestingu á netfangið siggerdur@simnet.is
                                              
Að venju þarf að hafa með sér: svefnpoka eða sæng, kodda, dýnu eða vindsæng, lak, sundfatnað, íþróttafatnað (ÍA-liti), innanhússskó, tannbursta, tannkrem og góða skapið. Hafið með ykkur vatnsbrúsa og það er í lagi að hafa með sér hreina ávaxtasafa. Það er ekki þörf fyrir mat og alls ekki kex, nammi, gosdrykki eða orkudrykki. Bakkamatur verður á staðnum, grillað brauð o.þ.h. þannig að enginn á að verða svangur. Það á alls ekki að senda börnin með peninga.
 
Tímasetningar:
Föstudagur
Kvöldmatur í skólanum (8 ára og yngri eru að keppa)
 
Laugardagur
9 – 12 ára: Upphitun. kl. 07:45 Mót kl. 08:30 – 13:00
13 ára og eldri: Upphitun. kl. 14:00 Mót kl. 15:00 – 18:30
 
Sunnudagur
9 – 12 ára: Upphitun. kl. 07:45 Mót kl. 08:30 – 13:00
13 ára og eldri: Upphitun. kl. 14:00 Mót kl. 15:00 – 18:15
 
Þjálfararnir sem fylgja verða: Erna og Mads
 
Fararstjórar með yngri eru Harpa (Droplaug og Matthildur) og Laufey (Ásgerður).
 
Enn vantar fararstjóra á eldri hópinn.
 
Allar upplýsingar um röð greina og mótaskrá er að finna á  www.keflavik.is/sund.
 
Kveðja, stjórn og þjálfarar