Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Nýttu hæfileika þína með því að leita ráða frá hinum.

Vefir aðildarfélaga
4. febrúar 2012

Á síðu Sundskólans Fjörfiska, sem rekinn er af Sundfélagi Akraness, er nú að finna tvö myndbönd sem sýna hvernig starfið þar fer fram.

 

Heimasíða Sundskólans Fjörfiska

29. janúar 2012

Gullmót KR verður haldið helgina 10.-12. febrúar í 50 m braut í Laugardalslaug. Þetta er jafnframt fyrsta gistimót tímabilsins og verður gist og borðað í Laugalækjarskóla sem er um 100m frá lauginni.

 

Frá Akranesi fara sundmenn fæddir 2002 og fyrr og okkur vantar duglega fararstjóra til að koma með og halda utan um hópinn. Það er hægt að skipta með sér verkum og bjóða sig fram t.d. frá föstudegi til laugardags annars vegar og frá laugardegi til sunnudags hins vegar.

Hér er hægt að skrá sig í fararstjórn (virkar ekki vel í Internet Explorer). Einnig má senda póst á sundfelag@sundfelag.com.

 

Á föstudag er keppt í opnum flokki. 13 ára og eldri keppa í hlutum 1, 2, 4 og 5 en 12 ára og yngri synda í hlutum 3 og 6, eftir hádegi á laugardag og sunnudag. Greinar fyrir 10 ára og yngri eru eftir hádegi á sunnudag.

 

Það hefur verið ákveðið að halda kostnaði í lágmarki og því verður ekki rúta þetta árið. Foreldrar þurfa því að gera ráðstafanir til að keyra og sækja sundmenn á staðinn. Mæting í Laugalækjarskóla kl. 15 föstudaginn 10. febrúar.

 

Vinsamlegast sendið tölvupóst á þjálfara fyrir fimmtudaginn 2. febrúar þar sem fram kemur hvort sundmaðurinn ætlar að taka þátt eða ekki: bjarney@sundfelag.com og mads@sundfelag.com.

 

 

Kostnaður verður 11.000 kr fyrir allan pakkann; gisting, matur (2x kvöldmatur, 2x morgunmatur, 2x hádegismatur og 1x kvöldhressing) og bakkamatur. Krakkarnir eiga ekki að þurfa að hafa neinn pening með sér en þurfa smá nesti fyrir föstudaginn.

 

Frekari upplýsingar koma þegar nær dregur.

 

Stjórn og þjálfarar.

 

 

 


 

28. janúar 2012

Bárumótið 2012 fór fram í Bjarnalaug í gær og tóku um 50 sundmenn fæddir 2000-2004 þátt.

 

Keppnin var skemmtileg og mjög gaman að sjá hversu mikið ungu sundmennirnir okkar eru að bæta sig. Þá var keppnin um Bárubikarinn æsispennandi en einungis munaði 6 FINA-stigum* á milli tveggja efstu strákanna og einu FINA-stigi á milli tveggja efstu stelpnanna.

 

Brynhildur Traustadóttir er Bárumótsmeistari stelpna 2012 og Sindri Andreas Bjarnason er Bárumótsmeistari stráka 2012 og óskum við þeim innilega til hamingju með góðan árangur.

 

Að móti loknu var keppendum og starfsmönnum boðið í pizzaveislu að Jaðarsbökkum og þar fór einnig fram verðlaunaafhending þar sem Bára, frænka og nafna Báru Daníelsdóttur sem mótið er til minningar um, afhenti bikarana.

 

Við viljum færa starfsfólki kærar þakkir fyrir aðstoðina og óskum öllum sundmönnum til hamingju með flott mót.

 

 

Stjórn og þjálfarar

 

 

 

*FINA-stig eru reiknuð út frá gildandi heimsmetum þar sem heimsmet er 1000 FINA-stig og síðan fækkar stigunum eftir því sem tíminn er lengra frá heimsmeti.

 

 

24. janúar 2012

Helgina 20.-22. janúar fór hópur sundmanna frá Sundfélagi Akraness á fyrsta sundmót ársins í Laugardalslaug í Reykjavík. Sundmótið var hluti af Reykjavíkurleikunum og þurftu sundmenn að ná lágmörkum til að geta keppt.

 

Nú er hafin keppni í 50m braut en sundtímabilið, sem er frá ágúst til júlí ár hvert, skiptist jafnan þannig að frá ágúst til desember er keppt í 25m braut og frá janúar til júlí er keppt í 50 m braut, með örfáum undantekningum. 
 
Skagamenn stóðu sig vel á sterku móti en Norðurlöndin sendu hópa sundmanna til þátttöku. Stærsta nafn mótsins var án efa Mie Nielsen 16 ára sundkona frá Danmörku sem Skagamaðurinn Eyleifur Jóhannesson hefur þjálfað undanfarið en hún á nokkur dönsk unglingamet og er eitt mesta efni Dana um þessar mundir.
Inga Elín Cryer varð í 2. sæti á eftir Mie í 200, 400 og 800 m skriðsundi og bætti eigin Akranesmet í 200 og 800 m skriðsundi. Birgir Viktor Hannesson bætti Akranesmet í 50 og 100 m baksundi en þetta var síðasta mót hans með Sundfélagi Akraness þar sem hann er að skipta yfir til Óðins á Akureyri þar sem hann býr og æfir undir handleiðslu móður sinnar, Ragnheiðar Runólfsdóttur. Aðrir Skagamenn náðu ekki á pall en margir syntu sig inn í úrslit.

 
Nú er runnið upp Ólympíuleikaár og þá fara fremstu íþróttamennirnir að leggja allt í sölurnar til að reyna við lágmörk fyrir þessa fremstu og stærstu íþróttahátíð heims. Þetta á því eftir að verða mjög spennandi sundár.

 

 

Úrslit frá RIG.

23. janúar 2012

Föstudaginn 27. janúar verður Bárumótið í sundi haldið í Bjarnalaug. Þetta er árlegt innanfélagsmót sem haldið er til minningar um Báru Daníelsdóttur og er fyrir 8-12 ára krakka í Sundfélagi Akraness. 

 

Allir keppa í 50m skriðsundi og 50m bringusundi og fá í lok móts viðurkenningu fyrir þátttökuna. Einnig verður stigahæsta sundfólkið verðlaunað með Bárubikurunum sem eru farandgripir. Árangurinn er reiknaður út frá stigatöflu FINA, þar sem samanlagður árangur í báðum greinunum gildir.

 

Þeir sem taka þátt eru allir fæddir 2000-2004 í Selum og C-hópi.

 

Krakkarnir eiga að mæta kl. 17.15 og keppni hefst kl. 17.30.

 

Eftir mótið er öllum sundmönnum boðið í pizzuveislu í Íþróttamiðstöðinni að Jaðarsbökkum þar sem verðlaunaafhending fer fram.

 

P.s. Krakkar hafið með ykkur aukahandklæði, til að geta þurrkað ykkur vel í lokin.

 

Stjórn og þjálfarar

 

20. janúar 2012

Í dag hefjast Reykjavíkurleikarnir 2012 eða RIG eins og þeir eru jafnan kallaðir. Á leikunum er keppt í ýmsum íþróttagreinum.

Sundmótið fer fram í Laugardalslaug í 50 metra braut.

Þetta er fyrsta sundmót ársins og jafnfram fyrsta sundmót tímabilsins í 50 m braut og verður spennandi að fylgjast með árangrinum.

 

Til að geta keppt á mótinu þarf að ná lágmörkum og sendir Sundfélag Akraness hóp keppenda á mótið.

 

Þetta er ekki gistimót og því þurfa sundmenn að sjá sjálfir um gott og hollt nesti.

 

Heimasíða mótsins með úrslitum og fleiri upplýsingum.

 

 

14. janúar 2012

Sundkonan Inga Elín Cryer var í gærkvöldi kjörin Íþróttamaður Akraness fyrir árið 2011. Önnur í kjörinu varð karatekona ársins Aðalheiður Rósa Harðardóttir, í þriðja sæti varð Íþróttamaður Akraness undanfarinna ára Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni.

 

Inga Elín átti virkilega gott sundár og vann til margra verðlauna bæði á alþjóðlegum vettvangi og hér heima.

Hún varð tvöfaldur Norðurlandameistari unglinga, fimmfaldur Íslandsmeistari á tveimur Íslandsmeistaramótum og áttfaldur Aldursflokkameistari. Auk þess setti hún sex Íslandsmet á árinu í þremur greinum og átta Akranesmet.

Í lok ársins 2011 á Inga Elín 3 Íslandsmet í kvennaflokki, 2 Íslandsmet í stúlknaflokki auk 21 Akranesmets í öllum flokkum, þar af 10 í kvennaflokki.

Á árinu 2011 keppti Inga Elín með landsliði Íslands á Smáþjóðaleikunum í Liechtenstein þar sem hún komst á pall í fjórum sundum, á Mare Nostrum mótaröðinni sem er mjög sterkt mót haldið í þremur löndum og í landskeppni Færeyinga og Íslendinga þar sem hún var stigahæsti sundmaður mótsins.

 

Á uppskeruhátíð Sundfélagsins var Inga Elín kosin besti félaginn fyrir góða framkomu við alla sundmenn félagsins og fyrir að vera óþreytandi í að hvetja liðsfélaga sína hvort sem er í keppni eða á æfingum. Hún setur sér skýr markmið og leggur mikið á sig til að ná þeim.

 

Afrek í meistaramótum innanlands:

Aldursflokkamót Íslands:

1. sæti í 800 metra skriðsundi

1. sæti í 400 metra skriðsundi

1. sæti í 200 metra flugsundi

1. sæti í 100 metra skriðsundi

1. sæti í 100 metra flugsundi

1. sæti í 200 metra flugsundi, Íslandsmet

1. sæti í 400 metra fjórsundi

1. sæti í 200 metra fjórsundi

 

Íslandsmeistaramót í 25m laug:

1. sæti í 800 metra skriðsundi, Íslandsmet

1. sæti í 400 metra skriðsundi, Íslandsmet

1. sæti í 200 metra flugsundi, Íslandsmet

2. sæti í 200 metra skriðsundi

3. sæti í 4x100 metra skriðsundi

 

Íslandsmeistaramót í 50 m laug:

1. sæti í 800 metra skriðsundi

1. sæti í 400 metra fjórsundi

2. sæti í 200 metra skriðsundi

3. sæti í 400 metra skriðsundi

3. sæti í 4x200 metra skriðsundi

3. sæti í 4x100 metra skriðsundi

 

Afrek í keppni með landsliði Íslands

Norðurlandameistaramót unglinga

1. sæti í 800 metra skriðsundi, Íslandsmet

1. sæti í 400 metra fjórsundi

2. sæti í 400 metra skriðsundi

 

Færeyjar - Ísland

1. sæti í 400 metra skriðsundi, Íslandsmet

 

Smáþjóðaleikar í Liechtenstein

1. sæti í 4x200 metra skriðsundi

2. sæti í 800 metra skriðsundi

3. sæti í 400 metra skriðsundi

3. sæti í 400 metra fjórsundi

5. sæti í 200 metra flugsundi

 

Mare Nostrum

úrslit í 800 metra skriðsundi

úrslit í 400 metra fjórsundi

úrslit í 200 metra fjórsundi.

 

 

3. janúar 2012

Þann 10. janúar ætlar C-hópur að selja kleinur.

 

Allir eru velkomnir að steikja, mæting kl. 16.30 í heimilisfræðistofur Grundaskóla.

 

Á árinu eru áætlaðar 12 kleinusölur sem skiptast niður á hópana (fólk fær tölvupóst þegar kemur að þeim). Öllum er þó velkomið að mæta og steikja hvenær sem er því stundum hentar tíminn ekki sem ætlaður er viðkomandi hópi og því er hægt að 'standa sína pligt' þegar aðrir hópar selja.

 

Það má láta Katrínu Leifs vita um þátttöku: katrin@sundfelag.com.

 

Stjórnin