3. janúar 2012 16:46
Einar Örn kraftlyftingamaður Akraness 2011
Kraftlyftingafélag Akraness hefur valið Einar Örn Guðnason sem kraftlyftingamann Akraness 2011.
Einar Örn hefur keppt á fjórum mótum á árinu: Íslandsmeistaramótinu í bekkpressu, íslandsmeistaramótinu í kraftlyftingum, bikarmóti í kraftlyftingum og evrópumeistaramóti unglinga í kraftlyftingum sem fram fór í Northumberland á Englandi.
Á árinu hefur Einar sett 17 íslandsmet í bæði unglinga- og opnum flokk karla bæði í 93 kg og 105 kg flokk. Eftir árið standa 10 þessara meta óhreyfð.
Á íslandsmeistaramótinu í kraftlyftingum sem fram fór um miðjan mars varð Einar íslandsmeistari í 93 kg flokk auk þess að setja íslandsmet unglinga í öllum lyftum og samanlögðu þar sem að hann lyfti 235 kg í hnébeygu, 190 kg í bekkpressu og 250 kg í réttstöðulyftu sem samanlagt eru 675 kg.
Á bikarmótinu sem fram fór á Akureyri í lok nóvember lenti Einar í öðru sæti í 105 kg flokk og lyfti þar 280 kg í hnébeygju, sem er íslandsmet unglinga og 215 kg í bekkpressu sem er bæði íslandsmet unglinga og í opnum flokk.
Eftir árið situr Einar í 8. sæti af 58 á árslista Kraftlyftingasambands Íslands yfir Wilks stig fyrir samanlagðan árangur. Þar að auki er Einar í 6. sæti á listanum fyrir árangur í hnébeygju og bekkpressu. Wilks stig er umreiknun á þeirri þyngd sem lyft er þannig að hún er óháð kyni og líkamsþyngd.