Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Minnstu síðustu mistaka þinna áður en þú dæmir aðra manneskju.

Vefir aðildarfélaga
3. febrúar 2012
Í kvöld kl:19.15 á Jaðarsbökkum er leikurinn sem allir á vesturlandinu eru búnir að vera að bíða eftir er ÍA fær Skallagrím í heimsókn. Þetta verður nágrannaslagur einsog hann gerist bestur. Skagamenn eru í harðri baráttu í að vinna sér sæti í úrslitakeppninni. Fjölmennum og hvetjum okkar lið.
10. janúar 2012
Höttur kom í heimókn á Akranesið og er óhætt að segja að þeir hafi farið fýluferð. ótrúlega flottur leikur hjá skagamönnum sem endaði 79 -63 sem lofar góðu fyrir árið. Alltaf gott að byrja árið á sigri. Í liði heima manna var Sigurður R. Sigurðsson stigahæstur með 21 stig og komu Hörður Nik. með 14 stig og T. Watson 12 stig! Glæsilegt hjá strákunum ! Glæsilegur sigur liðsheildarinnar!
7. janúar 2012
Fyrsti leikur ársins 2012 í körfunni. Enginn leikur í enska. Flugeldasýning frá 1. mínútu. Það er út í hött að mæta ekki.
14. desember 2011
Leikur ÍA gegn Ármanni sem vera átti í kvöld hefur verið færður yfir á föstudaginn 16.des nk. kl: 19:15 í íþróttahúsinu Jaðarsbökkum. Hvetjum alla til að mæta á leikinn og styðja okkar menn til sigurs.
25. nóvember 2011
Í kvöld mun KFA heimsækja bæinn sem oft hefur verið kenndur við ljósabekkja brúnku og hnakka, Selfoss. Leikurinn fer fram í Iðu á Selfossi klukkan 19.15 í kvöld Fsu (Selfoss) og KFA hafa tengst á ýmsan hátt í gegnum tíðina en 4 leikmenn KFA voru eitt sinn partur af Körfubolta akademíu FSu þegar akademían var að byrja. En það eru hinir prúðu drengir Áskell, Birkir,Halli og Höddi og var þeim stjórnað af ekki minni manni en Brynjar Karl sem var leikmaður KFA fyrir ekkert alltof mörgum árum. Einnig er vert að benda á að 1 Skagamaður í viðbót spilaði með fjórmenningunum á Selfossi á sínu...
19. nóvember 2011
Skagamenn tóku á móti Hamri í 1. deild karla í körfuknattleik föstudaginn 18. nóvember kl. 19:15 en einhvern veginn mættu okkar menn ekki til leiks alveg á þeim tíma. Hamarsmenn gengu á lagið og náðu upp góðri forystu og þegar 7 mínútur voru liðnar af leiknum leiddu þeir 9:23 og ljóst að við þyrftum að taka á því til að ná Hvergerðingunum. En það var einhvern veginn þannig að þegar að við náðum þessu niður í 10 stig þá kom góðu kafli á móti frá Hamri og staðan í hálfleik 38:53 fyrir gestina. Í hálfleik skrifaði Körfuknattleiksfélag Akranes undir samstarfssamning við Skeljung og fengu afhend...
15. nóvember 2011
Auglýsing fyrir næsta heimaleik Næsti heimaleikur ÍA verður gegn Hamar frá Hveragerði á Jaðarsbökkum þann 18 nóvember klukkan 19:15. Við viljum sjá fullt hús af fólki og svakalega stemmingu. Einnig viljum við biðja fólk um að taka vel á móti leikmönnum KFA hvort sem það er úr Drengja-, Stúlkna- eða Meistaraflokki þar sem þau eru að selja lífrænt ræktaðar Gulrætur á 1000 krónur 1.8kg Dregið var í dag í 32-liða úrslitum Poweradebikar karla og eftirfarandi lið drógust saman. Leikið verður dagana 9.-12. desember. Liðin sem mætast: 1. Reynir S · Ha...