Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Hlýleg orð geta skipt sköpum í lífi annarra.

Vefir aðildarfélaga
5. júní 2007 22:08

Þjálfaraskipti hjá Kára

Stjórn Knattspyrnufélagsins Kára og Ólafur Jósefsson þjálfari félagsins hafa komist að samkomulagi um að Ólafur láti af störfum sem þjálfari félagsins. Stjórn og þjálfari hafa orðið fyrir vonbrigðum með ástundun leikmanna sem m.a. hefur komið fram í slæmu tapi á móti Gróttu í Bikarkeppni KSI og töp í fyrstu tveimur leikjum félagsins í 3.deild.

 
Stjórnin og Ólafur telja best að Sigurður Halldórsson knattspyrnuþjálfari taki við liðinu aftur en hann þjálfaði liðið á s.l. ári. Sigurður stofnaði félagið ásamt Stefáni Bjarka Ólafssyni árið 2006. Stjórnin og Ólafur telja að Knattspyrnufélagið Kári eigi að geta náð mjög góðum árangri í 3.deildinni í ár ef leikmenn snúa bökum saman og æfi af kappi. 
 
Stjórnin þakkar Ólafi fyrir vel unnin störf í þágu félagsins.

 

Senda á Facebook