Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Sá sem setur sig í spor annarra er góður hlustandi

 

Vefir aðildarfélaga
21. febrúar 2012 14:16

Kári - Ægir: 3-2

Káramenn og Ægir áttust við í æfingaleik í Akraneshöll síðastliðinn sunnudag. Liðin virtust í svipuðu standi og bæði lið með nokkuð stóra hópa. Káramenn komust yfir í fyrri hálfleik með skallamarki, en þar var Kristinn Aron Hjartarson sterkastur í loftinu og skoraði gott mark. Ægismenn náðu þó að jafna fyrir hálfleik og staðan 1-1 í hálfleik. Káramenn virkuðu aðeins sterkari í seinni hálfleik, en leikurinn var í heildina nokkuð jafn. Káramenn komust aftur yfir um miðjan seinni hálfleik, en þar var á ferðinni Björgvin Andri Garðarsson sem lyfti boltanum snyrtilega yfir markvörð Ægismanna eftir sendingu frá Guðmundi Inga Gunnarssyni. Allt virtist stefna í sigur Káramanna þegar um 5 mínútur voru eftir, en 89 mínútu náðu Ægismenn að jafna leikinn eftir gott uppspil. Káramenn voru þó ekki á því að gefast upp og á 93 mínútu var brotið á Björgvin Andra um 10 metrum fyrir utan vítateig. Sveinbjörn Geir Hlöðversson tók spyrnuna, en markvörður Ægis átti erfitt með að halda föstu skoti hans og kom þá Kristinn Aron Hjartarson á ferðinni og hljóp á boltann sem skoppaði af læri hans og í netið. Frábær dómari leiksins Ágúst Hrannar Valsson flautaði leikinn af 30 sekúndum seinna. Fínn sigur Káramanna staðreynd gegn verðugum andstæðing.

Næsti æfingaleikur Kára verður í Akraneshöll sunnudaginn 4.mars klukkan 16:00.

Áfram Kári!

 

Senda á Facebook