Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Vertu jákvæður!  Allt of margir einbeita sér að hinu neikvæða.

Vefir aðildarfélaga
16. maí 2012
Káramenn spila við 2.deildar lið Aftureldingar í kvöld klukkan 20:00 á Varmárvelli í Mosfellsbæ. Káramenn sigruðu KH 6-1 í umferðinni á undan og Afturelding sló út Stál-Úlf 4-1. Með góðum leik og góðum stuðning ættu Káramenn að eiga ágætan séns á fínum úrslitum. Endilega mætið í Mosó og hvetjið lið Kára. Áfram Kári.
8. maí 2012
Káramenn burstuðu KH 6-1 í Bikarkeppni KSÍ í kvöld. Mörk Kára skoruðu Aron Örn Sigurðsson 2, Gísli Freyr Brynjarsson 2, Björgvin Andri Garðarsson 1 og Kristinn Aron Hjartarson 1. Næsti leikur Kára er í 2.umferð Bikarkeppni KSÍ miðvikudaginn 16.maí klukkan 20:00 gegn Aftureldingu. Leikurinn verður í Mosfellsbæ. Áfram Kári!
8. maí 2012
Káramenn hefja leik í Bikarkeppni KSÍ í kvöld klukkan 20:00 gegn KH frá Hlíðarenda. Bæði lið spila í 3.deild á þessu ári og má því búast við hörkuleik. Gengi þessara liða hefur verið misjafnt á undirbúningstímabilinu en Káramenn þó með betri úrslit en KH. Bæði lið hafa verið að styrkja sig að undanförnu og verður gaman að fylgjast með hvernig Káramenn standa sig í sínum fyrsta alvöru leik á tímabilinu. Við hvetjum fólk að sjálfsögðu til að mæta á leikinn og styðja Káramenn til sigurs. Áfram Kári!
26. apríl 2012
Káramenn sem voru á toppi riðilsins spiluðu úrslitaleik við ungt lið Skínanda um að komast í úrslitakeppni C-deildar Lengjubikarsins síðasta laugardag. Skínandi sem er að mestu ef ekki öllu leiti byggður upp af 2.flokk Stjörnunar höfðu fyrir leikinn unnið 2 leiki af 2, en Káramenn 3 leiki af 3. Káramenn virkuðu óvenju þungir miðað við síðustu leiki liðsins en lið Skínanda voru mun sprækari. Fyrri hálfleikur var þrátt fyrir úrslitin mjög jafn og Káramenn töluvert nær því að skora en Skínandi, en Skínandi var þó meira með boltann. Káramenn fengu 4 dauðafæri á meðan Skínandi nýtti sitt eina g...
20. apríl 2012
Tvö efstu lið C-deildar í riðli 2 áttust við í Akraneshöll síðastliðin laugardag. Bæði lið voru taplaus fyrir leikinn og höfðu unnið báða sína leiki nokkuð sannfærandi. Leikurinn var í heild mjög kaflaskiptur þrátt fyrir mikla yfirburði Káramanna framan af. Káramenn byrjuðu af miklum krafti og strax á 7 mínútu kom fyrsta mark þeirra, en þar var á ferðinni Almar Björn Viðarsson með ansi skondið mark er hann náði að snúa boltann inn í markið frá endalínu. 10 mínútum síðar eða á 17 mínútu kom sending inn fyrir á Kristinn Hjartarson og háði hann harða baráttu við markmann Stál-Úlfs um að ná bol...
26. mars 2012
Káramenn spiluðu sinn annan leik í Lengjubikarnum gegn ungu liði Bjarnarins í hávaða roki í Grafarvogi síðastliðinn laugardag. Leikurinn var mjög tvískiptur því vindurinn stóð algjörlega á annað markið. Káramenn byrjuðu með vindinn í fangið og lágu því frekar aftarlega til að verjast Birninum. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik, en á 42 mínútu komust Káramenn yfir þegar varnarmaður Bjarnarins náði að setja boltann í sitt eigið net. Staðan í hálfleik því 0-1 Káramönnum í vil og gott veganesti eftir að spila á móti sterkum vindi. Það hentaði Káramönnum vel að hafa Kára vin sinn með ...
19. mars 2012
Fyrsti alvöru leikur Kára fór fram sunnudaginn 12.3 í Akraneshöll. Mótherjar dagsins var lið Grundarfjarðar og því um Vesturlandsslag að ræða. Búist var við hörkuleik enda skildu liðin jöfn í báðum leikjum þeirra í deildinni í fyrra. Annað kom þó á daginn, því Káramenn komu mjög vel undirbúnir til leiks og allir sem einn ætluðu þeir að vinna þennan leik. Káraliðið átti hverja sóknina á fætur annari á meðan Grundfirðingar voru helst hættulegir í föstum atriðum. Þrátt fyrir nokkur mjög hættuleg færi kom fyrsta mark Káramann ekki fyrr en á 30 mínútu, en eftir góða sókn barst boltinn til Salvars G...
19. mars 2012
Sunnudaginn 4.mars fór fram leikur Kára og ÍH í Akraneshöll. Káramenn áttu frekar dapran dag í það skiptið og þrátt fyrir að vera með betra lið en ÍH að þá tapaðist leikurinn 1-2, en ÍH féll úr 2.deildinni í fyrra. Mark Kára skoraði Almar Björn Viðarsson eftir stungusendingu frá Guðmundi Degi Jóhannssyni. Laugardaginn 11.mars áttust við lið Kára og Stál-Úlfs sem er að mestu byggt upp af innflytjendum og erlendum verkamönnum. Liðið spilaði í 3.deild í fyrra með frekar döprum árangri. Káramenn fóru mjög rólega af stað og fyrstu 20 mínúturnar voru gestirnir með yfirhöndina og eftir um 15 mínút...