Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Það verður eins mikið úr deginum og þú gerir við hann.

Vefir aðildarfélaga

 

Karatefélag Akraness stofnað 1989

 

Félagið heitir "Karatefélag Akraness", skammstafað KAK. Meginmarkmið félagsins er að bjóða upp á eins góða karatekennslu og völ er á hverju sinni og þroska bæði líkamlegt og andlegt atgervi félagsmanna. Félagið hefur aðstöðu í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Þar er skrifstofan og dojo félagsins (æfingaaðstaðan) er í speglasalnum í kjallara hússins. Salurinn er um 160 fm með nýju parketi og hentar vel til karateiðkunar. Loftið er lágt og því myndast þar stundum rafmögnuð stemning þegar allir eru komnir á fullt og einbeitingin er í botni.