Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Þegar þér finnst þú vera að gefast upp haltu þá aðeins lengur áfram.

Vefir aðildarfélaga
27. ágúst 2008 14:48

Karate: Upplýsingar fyrir innritun

 Stundaskrá Karatefélagsins er komin á vef félagsins og tekur hún gildi 1. september nk, þjálfarar eru Einar Hagen, yfirþjálfari og Guðrún Birna Ásgeirsdóttir.  Verðskráin er óbreytt frá því síðast, innheimta: hefst 4 vikum eftir að haustæfingatafla tekur gildi í formi greiðsluseðla og verður gjaldagi 15 okt og eindagi 1 nóv.  Ef notuð er ávísun frá Akraneskaupstað þarf hún að berast til gjaldkera fyrir 1.okt.  Eftir að kröfur eru stofnaðar og einhver vill nota ávísun eftir það verður viðkomandi að hafa samband við gjaldkera félagsins.  Fjölskylduafsláttur er veittur fyrir 2 iðkendur eða fleiri, það þarf að koma fram við innritun eða fyrir septemberlok svo hægt sé að gera ráð fyrir þessu við stofnun greiðsluseðla.  Hvetjum ykkur til að koma og kíkja við hjá okkur á Innritunardeginum á morgun.

 

Senda á Facebook