Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Betra er að ljúka smáverkinu en skilja stórvirkið eftir ólokið.

Vefir aðildarfélaga

Lög Karatefélags Akraness

 

1.  Almenn ákvæði

 

1.1   Félagið heitir "Karatefélag Akraness", skammstafað KAK.

1.2   Merki félagsins skal vera svartur hringur með öðrum rauðum hring ofarlega. Inni í rauða hringnum skal vera lóðrétt skammstöfun á heiti félagsins.

1.3   Meginmarkmið félagsins er að bjóða upp á eins góða karatekennslu og völ er á hverju sinni og þroska bæði líkamlegt og andlegt atgervi félagsmanna.

1.4   Félagar geta þeir allir orðið sem greiða félagsgjald. Ef félagi greiðir ekki félagsgjald í tvö ár samfleytt verður hann tekinn út af félagaskrá, nema því aðeins að hann æski þess sérstaklega að vera áfram skráður félagi og nýtur þá lágmarksréttinda félagsmanna.

1.5   Stjórn ákveður félagsgjald og eru gjalddagar þess 1. október og 1. febrúar ár hvert. Við greiðslu félagsgjalds tryggir hver félagi félagsrétt sinn án tillits til hvort hann stundar æfingar eða ekki.

1.6   Sjóði félagsins skal ávaxta í banka á sem hagkvæmastan hátt.

1.7   Á öllum fundum félagsins skulu mál ná fram að ganga ef þau njóta stuðnings meirihluta þeirra er atkvæði greiða. Aðalfundur getur, svo framarlega sem löglega er til hans boðað, breytt lögum félagsins.

1.8   Ítrekuð brot á lögum eða reglum félagsins eru nægileg orsök brottrekstrar úr félaginu.

 

2.   Aðalfundur

 

2.1   Aðalfundur er æðsta vald félagsins. Hann skal haldinn í febrúar ár hvert og skal auglýsa með 1/2 mánaðar fyrirvara.

2.2   Á aðalfundi hafa þeir félagar (eða forráðamenn félaga) einir atkvæðisrétt sem greitt hafa árgjald félagsins.

2.3   Helstu fundarstörf eru: a) Skýrsla stjórnar, b) reikningar félagsins lagðir fram, c) lagabreytingar, d) kjör stjórnar og e) önnur mal. Tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn a.m.k. viku fyrir aðalfund.

 

3.  Stjórn

 

3.1   Stjórn félagsins skal skipuð fimm mönnum: a) Formanni, b) gjaldkera og c) þremur meðstjórnendum. Stjórnin skipar með sér verkum. Stjórnin skal vera fulltrúi félagsins í þeim samtökum sem félagið er aðili að.

3.2   Stjórn skal ásamt þjálfara ákveða a.m.k. einu sinni á ári að halda opinbera sýningu eða mót til að kynna karate íþróttina og sýna tæknilega kunnáttu nemenda.

3.3   Stjórnin túlkar lög félagsins. Hún skal halda fundi reglulega á a.m.k. tveggja mánaða fresti og oftar ef þörf krefur.

3.4   Félagar skulu fá vitneskju um áætlanir stjórnar sem skulu annað hvort birtar á auglýsingatöflu félagsins, heimasíðu félagsins eða tilkynntar á félagsfundi.

 

4.  Félagsfundir

 

4.1   Tilgangur félagsfunda er að ræða og/eða kynna þau mál sem eru ofarlega á baugi í félaginu hverju sinni.

4.2   Félagsfundir hafa æðra vald en stjórnin.

4.3   Stjórn félagsins skal halda félagsfund þegar 1/3 félagsmanna æskir þess.

4.4   Félagsfundir skulu haldnir eftir þörfum og auglýstir með viku fyrirvara.

 

5.  Þjálfunarmál

 

5.1   Ætíð skal stefnt að því að fá sem bestan og reyndastan þjálfara til félagsins.

5.2   Laun þjálfara skulu vera samningsatriði þjálfara og stjórnar hverju sinni.

5.3   Þjálfari setur umgengnisreglur í æfingasal.

5.4   Gráðupróf skulu haldin a.m.k. á þriggja mánaða fresti. Fá einungis þeir að taka próf er mætt hafa á 65% æfinga síðustu 3 mánuði fyrir próf.

5.5   Sjái félagi sér ekki fært að uppfylla mætingakröfur (sbr. 5.4) skal stjórnin og þjálfari taka afstöðu til undirbúnings hans.

5.6.  Þjálfari skal hafa vitneskju um áætlanir og gjörðir stjórnar og taka þátt í þeim ákvörðunum er lúta að æfingum og þjálfun félagsmann.