Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Vináttan er dýrmætasta gjöfin sem hægt er að fá.

Vefir aðildarfélaga

Þjálfarar

Þjálfari: Örnólfur Stefán Þorleifsson

Þjálfari: Þórður Sævarsson

Þjálfari: Alexander Maron Þorleifsson

Þjálfari: Arnór Már Grímsson

 

Örnólfur hefur mikla reynslu af hnefaleikum, hann hefur þjálfað og æft hnefaleika í rúm 6 ár. Hann hefur sótt námskeið í íþróttasálfræði ásamt fleiri íþróttatengdum námskeiðum. Örnólfur hefur einnig keppt í íþróttinni, hann hefur staðið að uppbyggingu félagsins og utanumhaldi þess frá árinu 2007.

 

Þórður hefur mikla keppnis- og þjálfarareynslu í hnefaleikum. Hann er íþrótta- og heilsufræðingur B.s frá Háskóla Íslands ásamt því að hafa þjáfararéttindi frá áhugamannasambandi Danmerkur, þar sem hann stundaði hnefaleika.

Þórður hefur stundað og þjálfað hnefaleika í rúm 12 ár og var meðal annars hnefaleikamaður ársins 2002 og 2003 og hlaut silfurverðlaun á danska meistaramótinu 2005 og 2006.

 

Alexander hefur töluverða reynslu af hnefaleikaþjálfun, hann hefur stundað íþróttina í 4 ár og þjálfað samhliða æfingum í 3 ár.

 

Arnór er einn af okkar sterkari hnefaleikaköppum. Hann varð Íslandsmeistari í 70 kg flokki árið 2011. Hann hefur æft hnefaleika í 6 ár og er með 17 leiki á bakinu. Arnór hefur þjálfað samhliða sínum æfingum í 4 ár.

 

GSM númer og e-mail þjálfara

 

Örnólfur Stefán Þorleifsson : 692 3714 - oddibox@gmail.com

Þórður Sævarsson : 898 7619 - ths67@hi.is

Alexander Maron Þorleifsson : 862 9538 - allimaron93@gmail.com

Arnór Már Grímsson : 866 7457 - arnorbox@gmail.com