Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Ekki draga hlutina,  komdu þér strax að verki.

Vefir aðildarfélaga
8. maí 2012
Þrír keppendur frá hnefaleikafélagi Akraness tóku þátt í hnefaleikakeppnum í Danmörku síðastliðna helgi ásamt keppendum frá hnefaleikafélaginu Æsir. Frá HAK fóru þeir, Guðmundur Bjarni Björnsson, Eyþór Helgi Pétursson og Arnór Már Grímsson, ásamt Þórði Sævarssyni, þjálfara. Fyrri keppnin var á vegum BK Örnen í Nakskov og þar mætti fyrst Eyþór Helgi Emill Lynggaard. Eins og venjulega boxaði í Eyþór í háu tempói og sótt hart en Emil læt sér nægja að svara með gagnhöggum sem rötuðu allt of oft inn. Þrátt fyrir það hafði Eyþór mikla yfirburði í annari og þriðju lotu, allt undir lokin þegar Emil ná...
2. maí 2012
Næstkomandi helgi leggja þrír hnefaleikakappar frá Akranesi í sína aðra keppnisferð á árinu til útlanda. Fyrir skemmstu voru HAK-menn í Nuuk á Grænlandi og nú er röðin komin að danaveldi. Þeir Guðmundur Bjarni Björnsson, Eyþór Helgi Pétursson og Arnór Már Grímsson taka þátt í tveimur keppnum dagana 4 og 5 maí. Fyrri keppnin er haldin á vegum vinaklúbbs HAK, BK Örnen í Nakskov, en þeir sóttu félagið einmitt heim síðastliðinn febrúar fyrir hnefaleikakeppni HAK á Akranesi. Síðari keppnin verður haldin í Vordingborg kvöldið eftir og eru gestgjafar BK Taarnet. Með í för verða fjórir keppendur frá ...
29. mars 2012
Fjórir hnefaleikakappar frá hnefaleikafélagi Akraness tóku þátt í móti á vegum hnefaleikafélagsins Æsir í Reykjavík í kvöld og vannst sigur í þremur af fjórum leikjum kvöldsins. Guðmundur Bjarni Björnsson sigraði andstæðing sinn örugglega 3-0. Gummi var mun sterkari aðilinn allan tímann og sigurinn var aldrei í hættu. Eyþór Helgi sigraði einnig sinn andstæðing 3-0 í mjög skemmtilegum leik þar sem Eyþór vann í mjög háu tempói allan tíman, hreyfði sig hratt inn fyrir vörnina og skoraði örugg stig með fallegum fléttum. Gísli Kvaran tapaði sínum leik 0-3 en stóð sig vel engu að síður. Gísli...
16. mars 2012
Aðalfundur Hnefaleikafélags Akraness verður haldinn mánudaginn 19.mars að Kirkjubraut 60 klukkan 20:30.
7. mars 2012
Um helgina tóku tveir keppendur frá hnefaleikafélagi Akraness þátt á glæsilegu móti sem fram fór í Nuuk á Grænlandi. Það voru þeir Eyþór Helgi Pétursson (60kg) og Guðmundur Bjarni Björnsson (80kg). Þar voru þeir staddir ásamt þjálfara sínum, Þórði Sævarsyni, og fleiri hnefaleikaköppum frá Reykjavík. Keppnin, sem haldin var af Fight Club Nanoq, var einstaklega vel heppnuð og mættu um 700 manns á áhorfendabekkina. Níu leikir fóru fram þetta kvöldið, þar af átta milli Íslendinga og Grænlendinga. Eyþór Helgi fór enn og aftur upp um tvo þyngdarflokka og atti þar kappi við Angulluk Thomassen, ...
2. mars 2012
Tveir af keppendum HAK, Gudmundur Bjarni og Eythor Helgi, eru staddir i Nuuk asamt thjalfara sinum, Thordi Saevarssyni og munu etja kappi vid heimamenn. Vigtun fer fram i kvold og keppnin hefst a morgunn kl 17. Heimamenn buast vid fjolmenni thratt fyrir 18 stiga frost og reikna their fastlega med ad yfir 500 manns muni maeta til ad fylgjast med. Meira um keppnina å morgunn, bidjum fyrir kvedju heim.
29. febrúar 2012
Hnefaleikafélag Akraness stóð fyrir glæsilegri keppni í íþrótthúsinu á Vesturgötu síðastliðinn laugardag þar sem fram fóru níu leikir, þar af voru tveir sýningarleikir. Auk Skagamann tóku þátt tvö félög frá Reykjavík og tvö frá Danmörku. Um hundrað manns mættu á áhorfendapallana til að styðja strákana og var stemmningin með besta móti. Skagamenn tefldu fram átta keppendum og margir þeirra voru að stíga sín fyrstu skref í hnefaleikahringunum. Úrslit urðu eftirfarandi: Viktor Magnason (Æsir) sigraði Gísli Trausti Jóhannesson (HAK) í sýningarleik Adam Kashan (Team Bredahl) sigraði Hauk Borg ...
21. febrúar 2012
HNEFALEIKAKEPPNI Á AKRANESI 25. febrúar kl 19.00 Tíu æsispennandi leikir í öllum aldursflokkum með keppendum frá öllum stærstu félögum landsins ásamt vinum okkar frá Danmörku: Hnefaleikafélag Akraness, Hnefaleikafélag Reykjavíkur, Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar, Hnefaleikafélagið Æsir, Karlebo Bokseklub og Team Bredahl. HAK teflir fram sex keppendum og eru margir hverjir að stíga sín fyrstu skref. Fyrir HAK keppa, Eyþór Helgi Pétursson, Arnór Már Grímsson, Guðmundur Bjarni Björnsson, Marinó Elí Gíslason Waage, Gísli Kvaran og Abdullah Alshaban. Leikirnir eru styrktir af Tölvuþjónustunni - Se...