|
Stundatafla Hnefaleikafélags Akraness - vor 2012 |
|
Tími |
Mánud. |
Þriðjud. |
Fimmtud. |
Föstud. |
Laugard. |
|
10:00 - 11:30 |
|
|
|
|
Keppnishópur |
|
17:00 - 18:00 |
Krakkar |
Krakkar |
Krakkar |
|
|
|
18:00 - 19:00 |
Box |
Box |
Box |
Box |
|
|
20:00 - 21:30 |
|
Keppnishópur |
Keppnishópur |
|
|
|
|
|
|
|
|
|
Hópar og verð
Krakkar (8 – 12 ára)
Þessi hópur er hugsaður sem skemmtileg og uppbyggjandi hreyfing og góð útrás fyrir þennan aldurshóp. Æfingarnar samanstanda af grunn hnefaleikakennslu, skemmtilegum og uppbyggjandi leikjum og þol- og styrktaræfingum. Krakkarnir fá tækifæri til að læra rétta líkamsbeytingu, stundvísi og sjálfsaga.
Þjálfari: Arnór
Verð fyrir önnina: 20.000
Box
Þessi hópur er ætlaður fólki á öllum aldri sem sækist eftir að læra grunninn í hnefaleikum og fá hreyfinguna sem þarf til að losna við aukakílóin, styrkja sig og/eða komast í betra form.
Æfingarnar samanstanda af grunn hnefaleikakennslu og þol- og styrktaræfingum. Um er að ræða mikið púl þ.e. skemmtilegt árangursríkt púl! Taka skal fram að þetta er fyrir alla og ekki er ætlast til að fólk hafi þol fyrir. Hver og einn gerir þetta á sínum hraða en þol byggist upp hratt. Íþróttasérfræðingar um allan heim hafa verið sammála því að boxæfingar séu ein besta hreyfingin fyrir hjarta- og æðakerfið.
Iðkendur sem eru áhugasamir og með góða ástundun í þessum hóp fá svo tækifæri til að komast í keppnishópinn, hafi þeir áhuga á því.
Þjálfarar: Alexander og Örnólfur
Verð fyrir önnina: (25.000 fyrir 4 æfingar í viku), (20.000 fyrir 3 æfingar í viku).
Keppnishópur
Lengri og erfiðari æfingar fyrir lengra komna boxara. Æfingarnar saman standa af erfiðum þol og styrktaræfingum, tækniæfingum fyrir lengra komna og miklu sparri. Einnig er æskilegt að keppendur mæti á 1 - 2 æfingar í viku með Box hópnum. Góð mæting og góð ástundun er skylda !
Þeir sem eru duglegir og með góða ástundun fá að keppa með samþykki þjálfara (það er ekki skylda að keppa þótt þú sért í keppnishóp).
Þjálfarar: Þórður og Örnólfur
Verð fyrir önnina: 25.000