Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Sönn hamingja er fólgin í því að gefa.

Vefir aðildarfélaga

(skáletrað eru breytingar sem gerðar voru á aðalfundi 26.11.09)

 

Lög hestamannafélagsins Dreyra

 

1.gr.

Nafn félagsins er Hestamannafélagið Dreyri. Félagssvæðið er Akranes og Hvalfjarðarsveit. Heimili þess og varnarþing er heimili fomanns. Félagið er aðili að ÍA, LH og ÍSÍ og er því háð lögum, reglum og samþykktum allra þessara samtaka.

 

2.gr.

Tilgangur félagsins er:

1. Að stuðla að réttri og góðri meðferð hesta.

2. Að efla áhuga og þekkingu á hestamennsku og hesta-íþróttum. 3. Að greiða fyrir því að félagsmenn geti átt aðgang að sameiginlegum beitarhögum fyrir reiðhestana sína.

4. Að byggja upp og halda við reiðvegum á félagssvæði Dreyra.

5. Að byggja upp og viðhalda aðstöðu til tamninga, þjálfunar og keppni til afnota fyrir félagsmenn.

6. Að halda og vanda sem best til kappreiða , íþróttamóta, góðhestakeppni og sýninga.

Félaginu ber að halda til haga öllum gögnum er viðkoma félagsstarfi og mótahaldi á vegum félagsins eða mótum sem félagið er aðili að.

 

3.gr.

Félagsmenn geta allir orðið sem áhuga hafa á hestamennsku. Inntökubeiðni í Dreyra skal vera skrifleg og öðlast umsækjandi full félagsréttindi þegar stjórn félagsins hefur samþykkt hana. Inntökubeiðni skal bera upp á næsta löglega félagsfundi til staðfestingar. Félagar sem verða 16 ára á almanaksárinu og yngri, hafa hvorki kosningarétt né kjörgengi.

 

4.gr.

Árgjald félagsmanna skal ákveðið fyrir næsta starfsár á hverjum aðalfundi.

Reikningsár félagsins er 1. janúar til 31. desember.

Eindagi félagsgjalda skal vera 1.apríl. Ef árgjald er ógreitt á eindaga missir viðkomandi félagsmaður öll félagsréttindi þangað til árgjald er greitt. Ef árgjald er ógreitt 31.desember fellur viðkomandi sjálfkrafa af félagsskrá Dreyra og það tilkynnt á næsta aðalfundi. Viðkomandi

getur ekki öðlast félagsréttindi á ný nema eldri skuld sé greidd. Óski félagsmaður eftir úrsögn úr félaginu skal það gert skriflega til stjórnar félagsins.

 

5.gr.

Stjórn félagsins skipa fimm menn. Formaður, varaformaður og þrír meðstjórnendur. Í varastjórn eru tveir og skulu þeir koma í þeirri röð sem þeir eru kosnir. Stjórnin er kosin á aðalfundi sem hér segir: formaður og varaformaður skulu kostnir til tveggja ára í senn. Að öðru leyti skipta stjórnarmenn með sér störfum á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund. Varamenn í stjórn skulu kosnir til eins árs í senn. Formaður er fulltrúi félagsins út á við og hefur umsjón með öllum framkvæmdum þess nema öðruvísi sé ákveðið. Stjórnin boðar félagsfundi. Formaður stýrir þeim eða nefnir til annan. Í fundarboði skal tilgreina fundarefni. Ritari varðveitir bækur og skjöl félagsins og skrifar gerðarbók á fundum. Stjórn Dreyra gefur út fréttabréf efitr aðalfund og oftar ef þurfa þykir. Gjaldkeri hefur fjárreiður á félagsins á höndum og annast innheimtu. Hann heldur fé félagsins á vöxtum og hefur á hendi greiðslur allar, samþykktar af formanni.

 

6.gr.

Félagsfundir skulu haldnir svo oft sem þurfa þykir eða ef tíu félagsmenn eða fleiri óska þess og tilgreina fundarefni. Fundur skal boðaður með minnst þriggja daga fyrirvara (sjá þó 8.gr.) og telst hann lögmætur ef löglega er til hans boðað. Ályktun lögmæts félagsfundar verður ekki breytt milli aðalfunda.

 

7.gr.

Á hverjum aðalfundi skal skipa í fastanefndir og ráð á vegum félagsins. Allar fastanefndir skulu skipaðar fimm mönnum. Nefndarmenn skipta með sér störfum á fyrsta fundi eftir aðalfund. Formönnum nefnda er skylt að skila skýrslu eða fundargerð um störf nefndar til stjórnar hvenær sem hún óskar.

Fastanefndir eru eftirfarandi: Móta –og vallanefnd, kynbótanefnd, beitarnefnd, fræðslu-og skemmtinefnd, ferðanefnd, uppstillingarnefnd, fjárölflunarnefnd, húsnefnd, reiðveganefnd og æskulýðsnefnd. Einnig skal skipa skoðendur reikninga. Stjórn Dreyra skipar í aðrar nefndir ef þörf krefur.

 

8.gr

Aðalfund skal halda í janúar ár hvert og skal hann boðaður með minnst viku fyrirvara. Dagskrá aðalfundar skal vera:

1. Innganga nýrra félaga.

2. Skýrsla stjórnar

3. Reikningar félagsins lesnir upp og þeir bornir undir atkvæði.

4. Kosning stjórnar og þeirra er yfirfara reikninga.

5. Kosning í nefndir

6. Önnur mál

Aðalfundur telst löglegur ef löglega er til hans boðað.

 

9.gr.

Lögum félagsins verður ekki breytt nema á aðalfundi og tveir þriðju (2/3) greiddra atkvæða samþykki breytinguna. Breytingartilögur sem félagsmenn kunna að vilja bera fram á lögum og reglugerðum félagsins, skulu hafa borist til stjórnar fyrir áramót og skal hún kynna þær fyrir félagsmönnum.

 

10.gr

Ef um ræðir að leysa félagið upp verður það að gerast á lögmætum félagsfundi og verða minnst tveir þriðju mættra félagsmanna að samþykkja slíka áætlun.

Fundurinn tekur ákvarðanir um ráðstöfun á eignum félagsins ef einhverjar eru. Þetta verður þó ekki gert nema að félagsstarf hafi legið niðri í minnst þrjú ár.

 

11.gr.

Um aðild að ÍA, LH, og ÍSÍ.

Val fulltrúa á héraðsþingi ÍA miðast við félagsmenn, skv. félagatali s.l starfsárs. Sama tilhögun gildir um fjölda fulltrúa á ársþingi LH.

Kjörgengi og kosningarrétt til íþróttaþings og ársþinga sambandsaðila ÍSÍ hafa þeir félagsmenn sem náð hafa 16 ára aldri sbr. 7.gr. laga ÍSÍ.

 

12.gr.

Lög þessi tóku gildi á aðalfundi félagsins þann 12.feb. 2006. Með lögum þessum eru eldri lög félagsins úr gildi numinn.

 

___________________

 

Lög og Reglur LH

http://www.lhhestar.is/static/files/Log_og_reglur/LH_log_og_reglur_2009%20-%201.pdf

 

_________________________

 

Reglugerð um

aðbúnað, umhirðu og heilbrigðiseftirlit hrossa.

http://www.lhhestar.is/static/files/Log_og_reglur/20080131091735436.pdf