Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Sá sem er úthvíldur getur verið frjór í hugsun og áorkað miklu.

Vefir aðildarfélaga
8. maí 2012
Haldinn verður skráningarfundur vegna Þingvallaferðarinnar miðvikudaginn 9.maí kl. 20:00 í Oddanum. Ákveðið hefur verið að hafa 5,000.- kr staðfestingargjald (sem fer uppí kostnað) og er fólk beðið um að hafa pening með sér. Hægt verður að fá upplýsingar um ferðina á fundinum. Síunga og spræka ferðanefnd Dreyra.
8. maí 2012
LAXÁRBAKKI 2012 Nú er komið að hinnni væntanlegu -árlegu hópreið Dreyramanna að Laxárbakka í Hvalfjarðarsveit. Lagt verður í hann frá félagsheimilinu laugardaginn 12. maí, kl 15:00. Trussbíll verður með í för og selur einhverjar nærandi veitingar. Á Laxárbakka mun vertinn selja okkur t,d kjötsúpu og hamborgara með öllu tilheyrandi og sitthvað fleira Félagsmenn hvattir til að mæta og nýta sér þetta frábæra tækirfæri og taka með sér gesti. Ps. Fjölmennum, þetta verður bara gaman. :-) Ef einhverjar spurning koma upp sem ég efa þá geta sú eða sá hringt í 896-1521.. Síunga og spræ...
30. apríl 2012
Nú styttist í júní en þá er fyrirhuguð ferð til Þingvalla (15 júní nk). Við í ferðanefnd ætlum að halda kynningafund og athuga áhuga hjá félagsmönnum á ferðinni. Kynnt verða leiðir sem verða farnar, skipulag ferðar, kostnaður ofl. Ef þið hafið áhuga á ferðinni þá er mjög brýnt að þið mætið á þennan fund sem verður haldinn í Æðarodda þann 2.maí kl. 20:00. Með kveðju Spræka ferðanefndin.
26. apríl 2012
Firmakeppni Dreyra verður haldin að venju 1. maí n.k. kl 14:00 í Æðarodda. Keppt verður í: Polla-, barna-, unglinga-, kvenna- og karlaflokki. Skráning á staðnum á frá kl 12:30-13:30 sama dag. Einnig verður unghrossakeppni fyrir 4. og 5. vetra hryssur, stóðhesta og geldinga. Veitt verða verðlaun fyrir 3 bestu unghrossin. Skráning í unghrossakeppnina er hjá Matta 8991550, Smára 8606350 og Ásu 6634574 eða senda á dreyri@gmail.com. Skráningargjald er 500 krónur á hross. Síðasti skráningardagur er 30.apríl n.k. Athugið reglur um járningar og fótabúnað kynbótahrossa gilda. ...
24. apríl 2012
Nú fer allt að verða klárt fyrir nýju félagsjakkana. Efnið í félagsjakkana er komið og saumakonurnar orðnar spenntar að hefjast handa ! Miðað við þær kostnaðartölur sem liggja fyrir er miðað við að hver jakki í fullorðinsstærð kosti um 25 þús og gert er ráð fyrir að jakkar í barnastærðum verði um 15 þúsund. (ath! ekki nákvæmt verð). Jakkarnir eru sérsniðnir fyrir hvern og einn. Til upplýsinga fyrir félagsmenn Dreyra þá er algengt verð á félagsjökkum hestamanna á landinu allt frá 25 – 50 þúsund. ! Við ætlum einnig að fá merki félagsins sérprentað/saumað og hægt verður ...
20. apríl 2012
Nuddnámskeið verður haldið 5-6. maí með Catrin Annica Engström en hún var með námskeið hjá okkur fyrir tveimur árum sem heppnaðist mjög vel. Námskeiðið byrjar kl. 9 á laugardeginum og er til ca. 17 og kl 10 á sunnudeginum til ca. 16. Nuddnámskeiðið kostar 15.000 kr fyrir félagsmenn og 17.000 kr fyrir þá sem ekki eru í félaginu. Þá er 5.000 kr staðfestingargjald sem greiðist við skráningu (sem dregst frá skráningargjaldi). Í hverju hópi eru 6-10 manns þannig að ef fleiri skrá sig er möguleiki á að fjölga helgum. Skráning hjá Siggu S. 868-5153 og hérna á vefnum (http://ia.is/vefiradildarf...
20. apríl 2012
Frá Kynbótanefnd Dreyra: Vegna mjög góðrar þátttöku í fræðsluferðina á morgun, 21. apríl, sem er frábært :-) þá ákváðum við að fá stærri rútu undir mannskapinn, og þess vegna getum við boðið nokkur sæti í viðbót. Farið verður af stað kl: 09:30 (ath. breyttur brottfarartími) frá Oddanum og stefnt er að heimkomu um kl 18. Það kostar 3000 kr. í ferðina sem greiðist í upphafi ferðar. Nú er bara málið að fylla rútuna af glöðum Dreyramönnum.- Koma svo.!!! Þetta verður bara skemmtilegt. Þátttaka tilkynnist á dreyri@gmail.com eða í síma 6634574. Með hoppandi kátri kveðju Kynbó...
16. apríl 2012
Fræðsluferð kynbótanefndar Dreyra laugardaginn 21.apríl n.k. Á dagskránni er að heimsækja húsráðendur á Grænhól, Vesturkoti, Austurkoti og Þjóðólfshaga. Áætlað er að leggja af stað frá Oddanum kl: 10. Athugið að lágmarksfjöldi í ferðina er um 15 manns og þeir sem ætla með þurfa að skrá sig á dreyri@gmail.com eða hringja í 6634574. Tilkynna þarf skráningu í síðasta lagi miðvikudagskvöldið 18. apríl. Kynbótanefndin. Ása, Marteinn, Smári og Stefán.