Fjórðungsmót á Kaldármelum 1. - 5 júlí 2009.
Heimasíða mótsins er www.lhhestar.is/fm2009
Hestamannafélögin á Vesturlandi Dreyri, Faxi, Skuggi, Glaður og Snæfellingur hafa umsjón með framkvæmd mótsins. Í framkvæmdanefnd mótsins eru: Ása Hólmarsdóttir Dreyra, Gunnar Örn Guðmundsson Faxa, Ámundi Sigurðsson Skugga, Eyþór Gíslason Glað og Gunnar Sturluson Snæfellingi. Nefndin hittist fyrst í október 2008 og lagði línurnar að framhaldinu. Í apríl var Bjarni Jónasson úr Grundarfirði ráðinn sem framkvæmdastjóri mótsins en því starfi hefur hann áður gengt á fyrri fjórðungsmótum.
Að þessu sinni er öllum hestamannafélögum á Norð-Vesturlandi boðin þátttaka ásamt Adam í Kjós, þ.e frá Kollafirði að Ólafsfriði.
Félagar í Dreyra eru 194 (15.apríl 09) sem gefur rétt á 4 keppendur í hvern flokk.
_______________________________________________________________
Bréf frá Framkvæmdastjóra FM 09.
Grundarfirði, 14. apríl 2009
"Varðar: Fjórðungsmót á Kaldármelum 2009.
Fyrir hönd framkvæmdanefndar Fjórðungsmóts á Kaldármelum, sem haldið verður dagana 1-5 júlí nk., sendi ég ykkur hér helstu upplýsingar er varða þátttöku á mótinu.
Gæðingakeppni.
Félagafjöldi bak við hvern hest, í hverri grein, eru 50 félagar. 51. félagi veitir næsta hesti þátttökurétt fyrir félagið.
Ein úrslit verða í gæðingakeppni með 8 hestum (a – flokkur, b – flokkur, barna-, unglinga- og ungmennaflokkur). Skráningargjald í gæðingakeppni er 4.000 kr. á hest, en frítt í barnaflokki.
Töltkeppni.
Töltkeppni í fullorðinsflokki verður opin 40 hæðstu hestum landsins 2009.
Töltkeppni í 17 ára og yngri verður bundin við hestamannafélög á Norð Vesturlandi. Þarf að skrá í hana óháð félagafjölda.
A og B úrslit verða í tölti fullorðinna, og einnig í yngri flokki, með 5 hestum. Skráningargjald er 5.000 kr. á hest í fullorðingsflokki, 4.000 kr. í yngri flokk.
Fljótandi 100 m skeið.
Opin keppni verður í fljótandi skeiði. Skráningargjald í fljótandi skeið er 5.000 kr.
Ræktunarbúsýningar.
Í ræktunarbúsýningum þarf að skrá 5 hesta frá hverju búi og 2 til vara. Skilyrði er að hrossin séu fædd sama aðila eða á sama bæ og skráður er fyrir sýningunni. Skráningargjald fyrir ræktunarbúsýningu er 50.000 kr.
Síðasti skráningardagur og jafnframt greiðsla skráningargjalda er 15. júní nk.
Hestamannafélögin eru hvött til þess að tilkynna skráningu eins fljótt og unnt er að úrtökum loknum.
Með von um góð og skjót viðbrögð.
Virðingarfyllst,
Bjarni Jónasson,
framkvæmdastjóri Fjórðungsmóts á Kaldármelum 2009
s: 894-9758, 438-6858 "
____________________________________________________
Drög að dagskrá
Keppni-sýning / hringvöllur |
|
Miðvikudagur 1. júlí |
|
|
14:00 - 18:00 |
Forkeppni B - flokkur |
|
Fimmtudagur 2. júlí |
|
|
08:30 - 12:00 |
Barnaflokkur |
|
13:00 - 18:00 |
Forkeppni A - flokkur |
|
18:30 - 21:00 |
Ungmenni |
|
Föstudagur 3. júlí |
|
|
08:30 - 12:00 |
Unglingar |
|
|
13:00 - 16:00 |
Hryssur yfirlit |
|
17:00 - 19:00 |
Forkeppni tölt 17 ára og yngri |
20:00 - 22:00 |
Forkeppni tölt |
|
Laugardagur 4. júlí |
|
|
09:00 - 09:40 |
Úrslit ungmenni |
|
09:40 - 10:20 |
Úrslit unglingar |
|
10:20 - 11:00 Úrslit barnaflokkur |
|
11:00 - 11:30 |
B-úrslit tölt |
|
11:30 - 12:00 |
B-úrslit tölt 17 ára og yngri |
13:00 - 15:00 |
Stóðhestar yfirlit |
|
16:00 - 17:00 |
Sýning ræktunarbúa |
|
17:30 - 18:00 |
Hópreið hestamannafélaga |
20:00 - 20:30 |
100m fljúgandi skeið |
|
20:30 - 21:00 |
Úrslit tölt 17 ára og yngri |
21:00 - 21:30 |
Úrslit tölt |
|
|
Sunnudagur 5. júlí |
|
|
11:00 - 12:30 |
Verðlaunaafhending kynbótahrossa |
12:30 - 13:00 |
Úrslit B - flokkur |
|
13:00 - 14:00 |
Verðlaunaafhending kynbótahrossa |
14:00 - 14:35 |
Úrslit A - flokkur |
|
Aðrir dagskráliðir.
Miðvikudagur 1.júlí
Trúbador í veitingatjaldi
Fimmtudagur 2.júlí
Trúbador í veitingatjaldi
Föstudagur 3. júlí
Setning móts kl: 16
Fjörureið. Mæting kl: 20 á Kaldármelum, kl:21 á Snorrastöðum.
Kvöldvaka í hvammi kl: 21
Dansleikur í hvammi kl: 22:30
Laugardagur 4.júlí.
Kvöldvaka í hvammi kl: 21
Dansleikur í hvammi kl: 22:30