Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Heilsan hefur áhrif á allt sem þú gerir. 

Vefir aðildarfélaga
17. febrúar 2012
Fyrstu vetrarleikar vetrarins verða haldnir sunnudaginn 26. febrúar kl 13:00 í Æðarodda. Keppt verður í fjórgangi í eftirtöldum flokkum: Meira vanir, minna vanir, unglingar og börn. Skráning á staðnum frá kl 12:30 og verða skráningargjöld sem hér segir: Börn frítt, unglingar kr. 500 og fullorðnir kr. 1000. Veitingasala verður á staðnum Mótanefndin
2. febrúar 2012
Kvennakvöld Dreyra verður haldið næstkomandi laugardag, 4. febrúar. Á boðstolnum verður mexikósk kjúlkingasúpa og meðlæti, veislustjóri og hljómsveitin Synir Syndanna spilar. Aðeins 2500 kr inn. Húsið oppnar kl 19:30 Skráning hjá Tobbu (6997353)
30. janúar 2012
Hestadagar í Reykjavík er samvinnuverkefni LH, Höfuðborgarstofu, Íslandsstofu, Icelandair Group og hestamannafélaganna á stórhöfuðborgarsvæðinu og verða haldnir dagana 29. mars – 1. apríl næstkomandi. Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði þetta árið. Fimmtudag og föstudag verður farið í reiðtúra, borðuð kjötsúpa, horft á tískusýningu, hrossaræktarbú heimsótt og horft á flotta gæðinga á lokakvöldi Meistaradeildar í hestaíþróttum í Ölfushöll. Eins og í fyrra verður farin skrúðreið á laugardeginum 31. mars og að þessu sinni verður farinn hringur í miðbænum. Í ráðhúsi Reykjavíkur verð...
30. janúar 2012
Aðalfundur Dreyra var haldinn síðastliðið miðvikudagskvöld og var mæting á fundinn með ágætum. Fjöldi nýrra félaga gekk í félagið og hefur fjölgað frá því í fyrra. Skýrslur nefnda voru góðar og sýna að gott starf er í Dreyra. Stefán Gunnar Ármannsson var kjörinn ný formaður og Valdimar Ólafsson varaformaður. Á fundinum fór fram kosning um nýtt nafn á félagsheimilið og var kosið á milli 5 nafna. Oddi, fékk flest atkvæði. Upplýsingar um nýja stjórn og nýja nefndir verða uppfærðar bráðlega á heimasíðunni.
16. janúar 2012
Aðalfundur hestamannafélagsins Dreyra verður haldinn miðvikudaginn 25. janúar n.k, kl: 20 í félagsheimilinu á Æðarodda. Á dagskrá eru hin venjubundnu aðalfundarstörf, þar sem m.a verður kosin ný stjórn og einnig verður kosið um nafn á félagsheimilið. Stjórn Dreyra hvetur félaga sína til að fjölmenna , taka þátt í fundinum og í nefndarstarfi komandi starfsárs. Minnum líka á fræðslufyrirlestur um Liti og Erfðir sem verður fimmtudaginn 26. janúar. (ath. skráningu) Sjáumst á aðalfundi. Með kveðju Stjórn Dreyra.
16. janúar 2012
VESTURLANDSSÝNING Í FAXABORG Borgarnesi laugardaginn 24. mars 2012 kl. 20:00 www.faxaborg.is Fulltrúar hestamannafélaga á Vesturlandi og Hrossaræktarsambands Vesturlands efna til sýningar. Vesturlandssýning var haldin í fyrsta skipti í fyrra vor í Faxaborg og má segja að það hafi verið endurvakning á sýningum sem voru haldnar fyrir mörgum árum af Vestlendingum í Víðidalnum og í Kópavogi. Mikil ánægja var með Vesturlandssýninguna 2011 og nú er ætlunin að gera enn betur. Á sýningunni munu koma fram vestlenskir gæðingar og dæmi um sýningaratriði eru sýningar hjá börnum og ungling...
11. janúar 2012
Reiðnámskeiðið er með Torunni Hjelvik og hefst 23. janúar. Um er að ræða 8 tíma námskeið. Möguleiki er að fá einka- eða hópatíma. Einkatími, hver tími er 30 mín og kostar námskeiðið 24.000 kr Tveir í hóp, hver tími er 40 mín og kostar námskeiðið 16.000 kr Þrír í hóp, hver tími er 40 mín og kostar námskeiðið 11.500 kr Fjórir í hóp, hver tími er 40 mín og kostar námskeiðið 8.000 kr Námskeiðið verður kennt á mánudögum og miðvikudögum. Námskeiðið er oppið fyrir alla en félagsmenn Dreyra ganga fyrir og þeir sem eru ekki í félaginu borga 2000 kr meira fyrir námskeiðið. Æskulýðsnefnd mun g...
11. janúar 2012
Á morgun fimmtudaginn 12. janúar kl 20:30 verður haldinn fundur Skvísanna í Dreyra. Á fundinum verður vetrarstarf Skvísanna kynnt sem verður með mjög fjölbreytu sniði. Þá verður peysu mátun og létt spjall á eftir. Hvetjum allar stelpur/konur/skvísur/gellur til að mæta. kv Skvísunefndinn