Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Vissir þú að Golfklúbburinn Leynir var stofnaður 15. mars 1965 og hét þá Golfklúbbur Akraness

Vefir aðildarfélaga
13. janúar 2012 19:45

Fyrsta skóflustungan fyrir vélaskemmu GL

Í gær 12. janúar var fyrsta skóflustunga tekin fyrir vélaskemmu GL. Jón Ármann Einarsson  sá  um það vandasama verk.  Þar með er formlega hafin bygging á vélaskemmu GL .

Um er að ræða rúmlega 500m2  vélaskemmu, húsið sjálft er frá Smellinn hf á Akranesi  og er áætlað að steypu á einingunum ljúki um næstu mánaðamót.

Byggingarnefnd GL undir styrkri stjórn Halldórs Hallgrímssonar hefur unnið ötullega undanfarnar vikur að þessu verki og hafa nefndarmenn lagt mikla sjálfboðaliðsvinnu

í þetta verk, eins hafa allir þeir sem hefur verið leitað til verið tilbúnir að leggja hönd á plóginn. Eins og áður sagði hófst uppgröftur í gær og eru það þeir félagar

Jón Ármann Einarsson  og Jóhann Þór Sigurðsson sem sjá um þennan hluta og er sú vinna alfarið unnin í sjálfboðaliðsvinnu hjá þeim félögum.

Það er ánægjulegt að finna þann meðbyr sem þetta verk hlýtur meðal félagsmanna GL og allra þeirra sem koma að þessu verki.

Það er ómetanlegt fyrir klúbb eins og GL að hafa aðgang að þessu úrvalsfólki sem er tilbúið að verja sínum frítíma  í þetta verk og ber að þakka fyrir það.

 

Senda á Facebook