Gott að vita! Nemendur
Nemendur mæti 5-10 mínútum áður en kennsla hefst (helst ekki fyrr) og bíði í búningsklefa þar til þjálfari sækir þá.
Nemendur mæti snyrtilega til fara, án skartgripa og þeir sem eru síðhærðir hafi teygju í hárinu.
Framhaldshópar skulu æfa í fimleikabol, frjálst er að vera í buxum við en þær verða að vera þröngar. Grunnhópar mega æfa í íþróttafatnaði en þó ekki í víðum fötum.
Nemendum er stranglega bannað að vera með tyggigúmmí.
Nemendum er aðeins heimilt að vera í salnum á æfingatíma og fari út úr salnum að lokinni æfingu í fylgd þjálfara.
Vakin skal athygli á því að ekki er tekin ábyrgð á fjármunum eða fatnaði inn í búningsklefa. Verðmæti ætti að fá geymd í afgreiðslu.
Nemendur skulu boða forföll til þjálfara. Símanúmer þjálfara er að finna á vefsíðu deildarinnar.
Ef nemandi ákveður að hætta eru foreldrar vinsamlega beðnir að tilkynna það til þjálfara.
Verið svo góðir gefa upp upplýsingarnar um: netfang, síma og GSM númer.
ATH ! Allar upplýsingar til foreldra verða sendar gegnum FELIX kerfinu , þess vegna er mikilvægt að upplýsingarnar verði réttar!
Gott að vita! Þjálfarar
Þjálfarar skulu vera stundvísir og mæta 10 mínútum áður en kennsla hefst.
Þjálfarar sækja hóp sinn í búningsklefa á réttum tíma og fylgja honum þangað aftur að æfingu lokinni.
Þjálfarar skulu halda vel utan um mætingaskrár nemenda sinna. Ef breytingar verða á hópi skal tilkynna það til yfirþjálfariaog láta uppfæra listann strax.
Þjálfarar skulu halda uppi góðum aga.
Þjálfarar eiga að klæðast þjálfaragalla eða íþróttafötum við kennslu og skulu ekki vera með áberandi skartgripi eða tyggigúmmí. Sítt hár skal hafa í teygju.
Þjálfari yfirgefur salinn ekki á undan börnunum.
Þjálfarar skulu hringja í nemanda sem ekki hefur mætt tvisvar í röð án þess að tilkynna forföll. Ef nemandi er hættur skal tala við foreldri og það tilkynnt til stjórnar.
Þjálfarar skulu útvega staðgengil tímanlega ef þeir forfallast og skal það tilkynnt til stjórnar/yfirþjálfara.
Þjálfari má ekki breyta æfingatíma eða hafa aukaæfingu án þess að fá leyfi hjá yfirþjáfaranum
Ef send eru skrifleg skilaboð eða tilkynningar til nemenda skal afgreiðsla alltaf látin fá eintakog það á að vera með fyrirvara
Þjálfarar eru ekki skyldir að hafa foreldrarfund nemaað það óskast!
Það er eðlilegt að láta foreldra vita ef eitthver ný æfing tekst hjá nemenda, en þarf einnig að hafa samband ef eitthvað mikilvægt vandamál kemur uppá (þjálfara eiga að láta yfirþjálfarann líka vita)
Þjáfarar eiga að taka stöðupróf um miðjan nóvember og fyrir páskafríið.
Stöðupróf: