Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Nýttu hæfileika þína með því að leita ráða frá hinum.

Vefir aðildarfélaga
7. september 2011
Æfingar eru hafnar hjá Blakfélaginu Bresa. Æfingatímarnir eru þeir sömu og síðasta vetur á mánudögum og fimmtudögum í íþróttahúsinu að Jaðarsbökkum. Nýliðar eru sértaklega boðnir velkomnir, um að gera að mæta og prufa.
7. september 2010
Æfingar eru hafnar hjá Bresa. Var góð mæting á fyrstu æfingarnar og er hugur í fólki. Karlarnir stefna á að hafa tvær æfingar í viku og eru allir sem áhuga hafa hvattir til að mæta. Sama er að segja um konurnar. Æfingar eru í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum á eftirfarandi tíma: Mánudagar kl. 20:30 - 22:00 (konur) kl. 21:15 - 22:30 (karlar) Fimmtudagar kl. 20...
17. maí 2010
Félagar í Bresa geta vel við unað árangurinn á Öldung 2010. A liðið varð í 3. sæti í þriðju deild, B liðið í 3. sæti í fimmtu deild og C liðið varð í 4. sæti í tíundu deild og er ljóst að þær konur sem þar kepptu eiga framtíðina fyrir sér. Þá má geta þess að þjálfari Bresa varð í 3. sæti með liði sínu KA 96. Tveir félagar í Bresa, Gústi o...
12. maí 2010
Þá er komið að því sem allir blakarar 30 ára og eldri bíða eftir, Öldungamót BLÍ. Að þessu sinni er mótið haldið í Mosfellsbæ og hafa keppendur aldrei verið fleiri. 125 lið eru skráð til leiks að þessu sinni. Bresi á lið í þriðju og fimmtu deild kvenna auk þess sem skráð var lið í 10.deild. Er þar um að ræða konur sem hófu að æfa blak í janúar s.l. og ætla að halda galvaskar á sitt fyrsta en örug...
29. mars 2010
Aðalfundur Bresa verður haldinn fimmtudaginn 8.apríl kl. 19:30. Fer fundurinn fram í íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórn Bresa
28. mars 2010
Farið er að síga á seinni hluta blakársins sem að þessu sinni er þó ívið lengra en oft áður. Bresi hefur lokið keppni í 2.deild á Íslandsmótinu og endaði í neðsta sæti í sínum riðli. Síðasti leikurinn fór fram s.l. fimmtudag á Jaðarsbökkum en þá fékk Bresi ÍK í heimsókn. Lauk leiknum með sigri ÍK - 26-24, 23-25, 17-25, 24-26. Eins og sjá má á úrslitatölum hrinanna var um jafnan og spennandi leik að ræða. það sama má segja um flesta leiki Bresa í deildinni því oft vantaði herslumuninn á að liðið næði stigi. Bresi sendi eitt lið á s.k. Kjörísmót Hamars sem fram fór í gær, laugardaginn 27....
18. janúar 2010
Um síðustu helgi var nóg um að vera hjá konunum í Bresa. Félagið sendi tvö lið á hraðmót HK sem haldið var laugardaginn 16. janúar. Var annað liðið skráð í 1.deild og hitt í 3.deild. Í 1.deildinni voru 6 lið og endaði Bresi í 4.sæti með 6 stig. Liðið spilaði 5 leiki og enduðu fjórir þeirra í oddi þannig að ljóst er að um spennandi keppni var að ræða. Í 3.deildinni rústaði Bresi öllum leikjum sínum og varð í 1. sæti með fullt hús stiga. Á sunnudaginn lék Bresi í 2. deild Íslandsmótsins við Þrótt. Bresi byrjaði vel og sigraði fyrstu hrinuna en seinni hrinurnar töpuðust illa. (25-19, 14-25, ...
21. nóvember 2009
Viltu koma í blak? Blakfélagið Bresi óskar eftir konum á besta aldri 16 ára og eldri til að koma og prófa/æfa blak. Æfingar eru 2 í viku: Mánudögum 19:30-21:00 í íþróttahúsinu á vesturgötu. Fimmtudögum 20:00-21:30 í íþróttahúsinu að jaðarsbökkum. Hlökkum til að sjá ykkur! Nánari upplýsingar veitir Steindóra Steinsdóttir s. 8919810 steindora.steinsdottir@akranes.is Bresi spilar við Stjörnuna sunnudaginn 22.nóv kl.14:00 á Jaðarsbökkum. Er ekki upplagt að kíkja á leikinn og mæta síðan á æfingu á mánudaginn?