Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Vináttan er dýrmætasta gjöfin sem hægt er að fá.

Vefir aðildarfélaga
22. janúar 2012 17:25

Reykjavíkurleikar 2012

Nú var að klárast badmintonhluti Reykjavíkurleikanna og átti Badmintonfélag Akraness marga þátttakendur á því móti.

Allir stóðu sig vel og margir spiluðu sig inn í undanúrslit og þaðan inn í úrslit sem leikin voru í dag.

Þar bar hæst árangur Andra Snæs Axelssonar sem lenti í 2. sæti í öllum greinum í u-13 flokki. Hann beið lægri hlut fyrir Bartal Poulsen frá Færeyjum í öllum greinunum. Andri Snær spilaði með Hörpu Kristnýju Sturlaugsdóttur í tvendarleik og Davíð Erni Harðarsyni í tvíliðaleik.

Helgi Grétar Gunnarsson komst í úrslit og sigraði í aukaflokki einliða u-17 og einnig komst hann í úrslit í tvíliðaleik með Arnóri Tuma Finnssyni frá Borgarnesi.

Harpa Hilmisdóttir frá Borgarnesi spilaði til úrslita í einliðaleik u-13 og beið lægri hlut fyrir Öldu Karen Jónsdóttur TBR (áður ÍA)

Halldór Axel og Daníel Þór komust í undanúrslit í tvíliðaleik u-17. Harpa Kristný og Úlfheiður Embla komust einnig í undanúrslit í tvíliða u-13 og biðu lægri hlut fyrir Færeyingum.

Úlfheiður komst í undanúrslit aukaflokki einliða í u-13.

 

Krakkarnir stóðu sig með miklum sóma og næsta mót verður fyrir u-11 á Akranesi um næstu helgi og svo verður aftur mót á Akranesi 11. og 12. febrúar og það er fyrir u13-u19. 

 

Senda á Facebook