Skipulagsskrá fyrir minningarsjóð
Guðmundar Sveinbjörnssonar
1. grein
Minningarsjóður Guðmundar Sveinbjörnssonar er stofnaður af íþróttabandalagi Akraness í virðingar- og þakklætisskyni fyrir hin veigamiklu störf hans í þágu Íþróttabandalags Akraness, íþrótta- og menningarmála.
Stofnfé sjóðsins er kr. 100.000.-
2.grein
Sjóðurinn er í vörslu Íþróttabandalags Akraness og fer um vörslu, fjárreiðu, bókfærslu og endurskoðun á reikningum sjóðsins eftir almennum reglum um sjóði í vörslu bandalagsins.
3.grein
Þriggja manna stjórn fer með yfirráð sjóðsins. Skal formaður Í.A. vera sjálfkjörinn formaður hennar, en tveir meðstjórnendur kosnir árlega á þingi í.A. Þó skal ekkja Guðmundar Sveinbjörnssonar, frú Halldóra Árnadóttir, heimilt að tilnefna annan meðstjórnandann, ef hún óskar þess.
4.grein
Úthluta skal úr sjóðnum einu sinni á ári á afmælisdegi Guðmundar Sveinbjörnssonar, 2. mars, en tilkynna skal úthlutunina á ársþingi íþróttabandalags Akraness. Stjórn sjóðsins ákveður styrkveitingu og ræður því, hvort auglýsa skuli eftir umsóknum eða ekki.
5.grein
Gjafir og aðrar tekjur sjóðsins leggjast óskiptar við höfuðstól, en hann má aldrei skerða. Úthluta má hverju sinni allt að 4/5 hlutum af vöxtum sjóðsins eins og þeir voru næsta ár á undan úthlutun.
Styrki má veita efnilegum íþróttamönnum til náms. Einnig má styrkja íþróttaþjálfara, sem sýnt hafa sérstakan áhuga í starfi til náms í íþróttaþjálfun, og aðra þá sem vinna að æskulýðs- og bindindisstörfum í bænum.
6.grein
Leita skal staðfestingar forseta íslands á skipulagsskrá þessari.