Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Þegar þér finnst þú vera að gefast upp haltu þá aðeins lengur áfram.

Vefir aðildarfélaga

Iðkendavefur ÍA

Bjóðum ykkur velkomin í hið fjölbreytta íþróttastarf sem fram fer innan raða ÍA. Markmiðið með iðkendavef ÍA er að gera aðgengilegar ýmsar hagnýtar upplýsingar er tengjast íþróttaiðkun hjá ÍA og sjá hvað er í boði. Á heimasíðum einstakra aðildarfélaga ÍA er að finna nánari upplýsingar um það íþróttastarf sem fram fer innan félagsins. Þar eru líka upplýsingr um einstaka flokka, þjálfara, æfingagjöld ofl. Ef þig eða barnið þitt langar að byrja að æfa íþróttir hjá ÍA er aðeins að finna út hvenær æfingarnar eru td. með því að skoða æfingatöflurnar. Mæta á svæðið og setja sig í samband við þjálfara viðkomandi flokks. Almennt fá allir að prófa að æfa frítt í viku að minnsta kosti og taka svo ákvörðun í kjölfar þess. Hlökkum til að sjá þig :)

 

Nóri nýtt skráningar og innheimtukerfi hjá ÍA

ÍA hefur tekið í notkun félakerfið Nóra og kemur það til með að halda utan um iðkendaskráningu og greiðslu æfingagjalda. Skráning iðkenda og greiðsla æfingagjalda mun nú einkum fara fram á internetinu í gegnum Nóra. Með þessu vonumst við eftir að skráning iðkenda í íþróttafélögin verði markvissari og að mörgu leiti auðveldari heldur en áður hefur verið. Þetta er líka mikil hagræðing fyrir starfsmenn / sjálfboðaliða íþróttafélaganna og auðveldar þeim þennan þátt starfsins.

 

Tómstundaframlag Akraneskaupstaðar

Akraneskaupstaður veitir tómstundaframlag vegna þátttöku 6 - 17 ára barna og ungmenna. Þeir sem ganga frá greiðslum við viðkomandi aðildarfélag ÍA í gegnum Nóra geta skráð nauðsynlegar upplýsingar fyrir greiðslu á tómstundaframlagi frá Akraneskaupstað. ÍA mun síðan skila þeim til Akraneskaupstaðar þar sem koma fram eftirfarandi upplýsingar: Nafn og kennitala foreldris/forráðamanns, bankaupplýsingar, upphæð sem ráðstafa á, nafn og kennitala viðkomandi barns. Akraneskaupstaður mun síðan endurgreiða foreldrum/forráðamönnum samkvæmt þeim upplýsingum. Þeir sem ganga frá greiðslu með millifærslu eða greiðsluseðli þurfa sjálfir að koma kvittun fyrir greiðslunni til Akraneskaupstaðar ásamt nauðsynlegum upplýsingum. Miðað er við að greiða það sem borist hefur 20. hvers mánaðar fyrsta virkan dag nýs mánaðar þar á eftir. ATH: Nýta verður upphæðina fyrir 15. desember

  

- Fara hér í Nóra til að skrá og greiða æfingagjöld hjá ÍA -

 

Sækja ítarlegar leiðbeiningar um skráningu iðkenda og greiðslu æfingagjalda í Nórakerfi ÍA (pdf).

 

- Skoða upplýsingar um tómstundaframlag Akraneskaupstaðar til niðurgreiðslu æfingagjalda.

 

- Fara á heimasíðu Nóra kerfisins til að sjá nánari upplýsingar, sækja handbækur og leiðbeiningar.

 

- Aðgangur starfsmanna/Þjálfara að Nóra

 

Hagnýtar upplýsingar í tengslum við íþróttaiðkun hjá ÍA:

 

Lög og reglur ÍAÍþróttastefna ÍA - Siðareglur ÍA - Tryggingamál í Íþrótttum - Fræðslubæklingar ÍSÍ

 

Akraneskaupstaður - Þorpið/ArnardalurVefur ÍSÍ - Vefur UMFÍ - Forvarnadagurinn