Hlýleg orð geta skipt sköpum í lífi annarra.
Framkvæmdastjórn ÍA hefur nú greitt aðildarfélögum sínum styrk að upphæð kr. 5 milljónir. Þessir fjármunir eru afrakstur af þrekstarfsemi ÍA sem og skipting á hlutdeild ÍA í Lottó tekjum. Styrkurinn kemur án ef í góðar þarfir í því fjölbreytta íþróttastarfi sem fram fer innan vébanda ÍA. Íþróttabandalag Akraness hvetur Skgagamenn til að vera áfram duglegir að sækja líkamsræktina og spila í Lottó og stykja þannig jafnframt íþróttastarf á Akranesi. Upphæðin skiptist samkvæmt sömu forsendum og úthlutun á styrk Akraneskaupstaðar til íþrótta- og tómstundafélaga. Aðildarfélög ÍA eru nú 17 talsins og með rúmlega 2.400 iðkendur.
Götulengdir á Akranesi