Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Nýttu hæfileika þína með því að leita ráða frá hinum.

Vefir aðildarfélaga
13. apríl 2012
68. Ársþing ÍA fór fram í gær 12.apríl. Þingið var vel sótt og alls mættu rúmlega 30 fulltrúar frá 12 aðildarfélögum ÍA. Lögð var fram ársskýrsla ÍA fyrir árið 2011 og farið var yfir ársreikninga íþróttabandalagsins. Í ræðu sinni fór Sturlaugur Sturlaugsson formaður ÍA yfir það helsta í starfi íþróttahreyfingarinnar á Akranesi á liðnu ári. Hrósaði hann félögunum fyrir ábyrgan rekstur eru fjármál hreyfingarinnar í jafnvægi. Hagnaður Íþróttabandalagsins var um 1,7 m.kr. Sturlaugur fór yfir ýmsa möguleika varðandi frekari uppbyggingu íþróttamannvirkja og lagði áherslu á að haldið yrði áfram að vi...
12. mars 2012
68. ársþing Íþróttabandalags Akraness verður haldið fimmtudaginn 12. apríl nk. kl: 18:30 í Íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum. Dagskrá ársþingsins verður samkvæmt lögum ÍA.
24. janúar 2012
Framkvæmdastjórn ÍA hefur nú greitt aðildarfélögum sínum styrk að upphæð kr. 5 milljónir. Þessir fjármunir eru afrakstur af þrekstarfsemi ÍA sem og skipting á hlutdeild ÍA í Lottó tekjum. Styrkurinn kemur án ef í góðar þarfir í því fjölbreytta íþróttastarfi sem fram fer innan vébanda ÍA. Íþróttabandalag Akraness hvetur Skgagamenn til að vera áfram duglegir að sækja líkamsræktina og spila í Lottó og stykja þannig jafnframt íþróttastarf á Akranesi. Upphæðin skiptist samkvæmt sömu forsendum og úthlutun á styrk Akraneskaupstaðar til íþrótta- og tómstundafélaga. Aðildarfélög ÍA eru nú 17 talsins og...
13. janúar 2012
Sundkonan Inga Elín Cryer var í kvöld kjörin Íþróttamaður Akraness fyrir árið 2011. Önnur í kjörinu varð karatekona ársins Aðalheiður Rósa Harðardóttir, í þriðja sæti varð Íþróttamaður Akraness undanfarina ára Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni. Inga Elín átti virkilega gott sundár og vann til margra verðlauna bæði á alþjóðlegum vettvangi og hér heima. Hún varð tvöfaldur Norðurlandameistari unglinga, fimmfaldur Íslandsmeistari á tveimur Íslandsmeistaramótum og áttfaldur Aldursflokkameistari. Auk þess setti hún sex Íslandsmet á árinu í þremur greinum og átta Akranesmet. Í lok ársins...
10. janúar 2012
Kjörið á Íþróttamanni Akraness fyrir árið 2011 fer fram föstudaginn 13. janúar n.k. kl: 17:30 í Bíóhöllinni. Öllum er velkomið að koma og fylgjast með kjörinu. Veittar verða viðurkenningar til þeirra sem sigrðu á Íslands- eða bikarmótum á árinu 2011, en alls eignuðumst við um 117 meistara í 13 íþróttagreinum á árinu. Kjörinu á Íþróttamanni Akraness fyrir árið 2011 verða síðan gerð góð skil. Eftirtaldir íþróttamenn hafa verið tilnefndir af sínum félögum í kjörið að þessu sinni: 1. Badmintonmaður ársins: Egill Guðvarður Guðlaugsson 2. Fimleikamaður ársins: Ástrós Líf Rúnarsdóttir 3. Hest...
9. janúar 2012
Nú um áramótin fá nemendur sem eru í 8. bekk og verða 14 ára á árinu leyfi til að nota þreksalina í íþróttamannvirkjunum sér til heilsubótar. Okkur er umhugað um að byrjendur fái jákvæð fyrstu kynni af þjálfun í sölunum og hafi kost á leiðsögn um hvernig skynsamlegt er að byrja og nýta það sem í boði er. Við höfum því fengið hann Dean Martin þrekþjálfara til að vera í þreksalnum á Jaðarsbökkum og veita þeim leiðsögn á eftirfarandi tímum: Mán 9.1 kl: 16:00 - 17:00 þri 10.1 kl: 14:00 - 15:00 Mán 16.1 kl: 16:00 - 17:00 þri 17.1 kl: 14:00 - 15:00 fös 20.1 kl: 14:00 - 15:00 Hvetjum við al...
4. janúar 2012
Því miður frestast kjörið á íþróttamanni Akraness fyrir árið 2011 um óákveðinn tíma. Ný tímasetning verður auglýst fljótlega. Málið er að þrettándagleðin sem Akraneskaupstaður hefur umsjón með hefur verið færð fram á fimmtudaginn nk. Sá tími setti okkur hjá ÍA í afar erfiða stöðu varðandi kjörið á Íþróttamanni Akraness þar sem tvær af okkar helstu kandídötum verða ekki til staðar. Á fimmtdagskvöldið er kjörið á íþróttamanni ársins á Íslandi og þar er Aðalheiður Rósa fulltrúi okkar sem karatekona ársins. Við teljum að það sé óvirðing að okkar hálfu að færa okkar kjör ofaní þann viðburð. Einnig ...
2. janúar 2012
Kjörið á Íþróttamanni Akraness fyrir árið 2011 fer fram föstudaginn 6. janúar n.k. (á Þrettándanum) Blysför hefst við Arnardal kl.18:00 stundvíslega og endar hjá brennu að Jaðarsbökkum við þyrlupallinn, þar sem stiginn verður álfadans. Glæsileg flugeldasýning verður svo um kl 18:45 og að henni lokinni verður kjörinu á íþróttamanni Akraness gerð skil. Af því tilefni býður Íþróttabandalag Akraness bæjarbúum í íþróttamiðstöðina að Jaðarsbökkum, þiggja veitingar og fylgjast með athöfninni. Eftirtaldir íþróttamenn hafa veriðtilnefndir af sínum félögum í kjörið að þessu sinni: 1. Badmintonmað...