Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Eldmóðurinn er driffjöður lífsins. Án hans getur þú ekkert en með honum eru þér allir vegir færir.

 

Vefir aðildarfélaga
22. febrúar 2012
Úrslit Íslandsmóts! http://www.fimleikasamband.is/node/894 Liðið í 5.flokk lenti í 5.sæti af 16 liðum auk þess fékk hæsta einkunn á dýnuæfingunni. Stelpurnar sem kepptu í 5flokk: Aldís, Ragna, Ásta, Sóley, Ingibjörg, Andrea, Salka, Undís, Dawn, Róberta, Sylvía, Aþena, Karen, Marín, Valdís, Ylfa. Liðið í 4.flokk lenti í 6.sæti af 16 liðum auk þess fékk 3.hæsta einkunn á trampólininu Stelpur...
21. febrúar 2012
Káramenn og Ægir áttust við í æfingaleik í Akraneshöll síðastliðinn sunnudag. Liðin virtust í svipuðu standi og bæði lið með nokkuð stóra hópa. Káramenn komust yfir í fyrri hálfleik með skallamarki, en þar var Kristinn Aron Hjartarson sterkastur í loftinu og skoraði gott mark. Ægismenn náðu þó að jafna fyrir hálfleik og staðan 1-1 í hálfleik. Káramenn virkuðu aðeins sterkari í seinni hálfleik, en ...
21. febrúar 2012
HNEFALEIKAKEPPNI Á AKRANESI 25. febrúar kl 19.00 Tíu æsispennandi leikir í öllum aldursflokkum með keppendum frá öllum stærstu félögum landsins ásamt vinum okkar frá Danmörku: Hnefaleikafélag Akraness, Hnefaleikafélag Reykjavíkur, Hnefaleikafélag Hafnarfjarðar, Hnefaleikafélagið Æsir, Karlebo Bokseklub og Team Bredahl. HAK teflir fram sex keppendum og eru margir hverjir að stíga sín fyrstu skref....
17. febrúar 2012
Á morgun, laugardag, verður haldið Þórsmót í Þorlákshöfn. Badmintonfélag Akraness á þar nokkra keppendur. Þetta er síðasta mót fyrir Íslandsmót unglinga sem haldið verður 3.-4. mars í Mosfellsbæ. Okkar keppendur keppa í u-11,u13 og u-15. Mótaskráin er komin á netið og þar er hægt að sjá hvenær leikir eru tímasettir. Vinsamlega athugið að mæting er amk. 30 mínútum fyrir leik. Flestir okkar keppen...
17. febrúar 2012
Fyrstu vetrarleikar vetrarins verða haldnir sunnudaginn 26. febrúar kl 13:00 í Æðarodda. Keppt verður í fjórgangi í eftirtöldum flokkum: Meira vanir, minna vanir, unglingar og börn. Skráning á staðnum frá kl 12:30 og verða skráningargjöld sem hér segir: Börn frítt, unglingar kr. 500 og fullorðnir kr. 1000. Veitingasala verður á staðnum Mótanefndin
15. febrúar 2012
Hópurinn I1 sem eru stelpur fæddar árið 2001 tóku þátt á Þorramóti Selfoss þann 4.febrúar síðastliðin. (Amalía Rut, Birgitta Nótt, Eyrún, Freyja Maria, Ída Mýrdal, Katla Kristín, Katrín Maria, Katrín Helga, Klara, María Dís, Oddný, Vilborg Lind) Stelpurnar stóðu sig með stakri prýði og lentu í 2. sæti. Þær áttu það svo sannarlega skilið enda búnar að æfa mikið fyrir mótið. Glæsilegur árangur h...
13. febrúar 2012
Egill Guðlaugsson var valinn í A-landsliðið sem hélt til Hollands í gær. Þar mun liðið taka þátt í Evrópumóti karla- og kvennalandsliða. Egill er eini sem æfir með Badmintonfélagi Akraness sem komst í þessa ferð en eru þó fleiri Skagamenn með í för. Karitas Ósk Ólafsdóttir sem áður æfði hér en æfir nú í TBR er einnig í liðinu. Þá eru Magnús Ingi Helgason og Tinna Helgadóttir einnig í liðinu en þa...
13. febrúar 2012
Þann 29. janúar var haldið Grislingamót ÍA fyrir börn fædd 2001 og síðar. Þátttakan var góð og voru um 45 krakkar sem mættu og tóku þátt. Öllum var skipt í lið, óháð félagi, og svo var leikin liðakeppni. Allir fengu að spila 5 leiki og voru margir snilldar taktar sem litu dagsins ljós. Iðkendur úr hópum 1 og 2 mættu til að vera liðsstjórar og eru þeim færðar þakkir fyrir aðstoðina. Landsbankamó...
12. febrúar 2012
Kári - Grundarfjörður: 6-2 Leikurinn var nokkuð jafn í fyrri hálfleik, en Káramenn þó aðeins sterkari. Grundfirðingar fengu þó drauma byrjun þegar þeir skoruðu fínt mark eftir rúma mínútu. Þeir fengu aukaspyrnu á vinstri kanti, skotið fór í slánna og datt svo fyrir fætur Grundfirðings. Káramenn skoruðu sitt fyrsta mark ekki löngu seinna og var þar á ferðinni Almar Viðarsson með fast skot í vinst...
12. febrúar 2012
Nú á eftir eiga Káramenn leik við nágranna sína í Grundarfirði og hefst leikurinn 17:30. Á síðasta keppnistímabili áttust liðin tvisvar við í deildinni og í bæði skiptin enduðu leikirnir með jafntefli þ.a. búast má við hörkuleik. Endilega mætið og hvetjið Káramenn. Áfram Kári.
10. febrúar 2012
Æfingar falla niður núna á laugardaginn 02/11 vegna Badmintonmóts. Frí í íþróttaskólanum á laugardaginn!
5. febrúar 2012
Íslandsmót Unglinga verður haldinn í Selfoss 11-12/02. Skipulagið má finna her: http://www.fimleikasamband.is/node/894
5. febrúar 2012
Hnefaleikafélag Akraness heldur stóra hnefaleikakeppni í febrúar þar sem við tökum á móti liði frá Danmörku. Við leitum að styrktaraðilum fyrir keppnina. Nú þegar hafa strákarnir okkar fengið styrki fyrir fimm leikjum, 10.000 kr fyrir hvern leik. Styrktaraðilarnir verða gefnir upp síðar. Hér er gott tækifæri til að styrkja unga og efnilega íþróttamenn. Keppendalisti verður birtur innan skamms og ...
5. febrúar 2012
Skagastrákarnir stóðu sig ágætlega á hnefaleikamóti hjá H.R. (Hnefaleikafélag Reykjavíkur) í gærkvöldi þótt sigrarnir hefðu gjarnan mátt vera fleiri. Afmælisbarnið Eyþór Helgi Pétursson (60kg) fór upp um tvo þyngdarflokka en mátti lúta í lægra haldi fyrir andstæðing sínum 2-1. Sigurinn hefði allt eins getað lent Eyþórs megin en dómararnir sáu þetta svona. Marinó Elí Gíslason Waage tapaði 2-1 f...
4. febrúar 2012
Keilufélag Akraness var sigursælt á Meistarakeppni Ungmenna í keilu sem fram fór í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð laugardaginn 4.febrúar. KFA átti keppendur í 6 flokkum og lentu ungmennin á verðlaunapall í þeim öllum og fékk félagið 4 gull, 1 silfur og 2 brons. Í 4.flokki pilta náði Ólafur Ólafsson 3.sæti, í 3.flokki stúlkna náði Jóhanna Guðjónsd...
4. febrúar 2012
Á síðu Sundskólans Fjörfiska, sem rekinn er af Sundfélagi Akraness, er nú að finna tvö myndbönd sem sýna hvernig starfið þar fer fram. Heimasíða Sundskólans Fjörfiska
3. febrúar 2012
Í gærkvöldi fór fram leikur í 8 liða úrslitum Bikarkeppni K.L.Í þar sem ÍA mætti KR-A. Fór leikurinn fram í Keilusal Akraness og er óhætt að segja að spennan hafi verið í aðalhlutverki. Skagamenn töpuðu fyrsta leik en unnu svo næsta og var þá orðið ljóst að þessi viðreign þyrtti að lágmarki fjóra leiki til að fá úrslit. Þriðja leikinn unnu svo ÍA og var ÍA þá kominn með tvo sigra og þurti þá að ...
3. febrúar 2012
Hnefaleikafélag Akraness teflir fram þremur keppendum á móti hjá H.R. (Hnefaleikafélag Reykjavíkur) laugardagskvöldið 4. febrúar. Það eru þeir Eyþór Helgi Pétursson (60kg), Guðmundur Bjarni Björnsson (80+ kg) og Marinó Elí Gíslason Waage (63kg). Keppnin fer fram í húsnæði H.R. í Mjölnishúsinu og hefstu klukkan 20.00. Þessi keppni verður ágætis undirbúningur fyrir strákana fyrir stóru keppnina sem...
3. febrúar 2012
Í kvöld kl:19.15 á Jaðarsbökkum er leikurinn sem allir á vesturlandinu eru búnir að vera að bíða eftir er ÍA fær Skallagrím í heimsókn. Þetta verður nágrannaslagur einsog hann gerist bestur. Skagamenn eru í harðri baráttu í að vinna sér sæti í úrslitakeppninni. Fjölmennum og hvetjum okkar lið.
2. febrúar 2012
Þá er komið að fyrsta æfingaleik Kára á árinu 2012 og er það gegn liði Ísbjarnarins, en liðin léku 2 leiki á síðastliðnu sumri og lauk leikjum liðana með sigri Káramanna í bæði skiptin, 0-4 á útivelli og 5-0 á heimavelli. Það verður því spennandi að sjá hvernig Káramenn koma undan vetri. Áfram Kári!
2. febrúar 2012
Kvennakvöld Dreyra verður haldið næstkomandi laugardag, 4. febrúar. Á boðstolnum verður mexikósk kjúlkingasúpa og meðlæti, veislustjóri og hljómsveitin Synir Syndanna spilar. Aðeins 2500 kr inn. Húsið oppnar kl 19:30 Skráning hjá Tobbu (6997353)
30. janúar 2012
Hestadagar í Reykjavík er samvinnuverkefni LH, Höfuðborgarstofu, Íslandsstofu, Icelandair Group og hestamannafélaganna á stórhöfuðborgarsvæðinu og verða haldnir dagana 29. mars – 1. apríl næstkomandi. Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði þetta árið. Fimmtudag og föstudag verður farið í reiðtúra, borðuð kjötsúpa, horft á tískusýningu, hrossaræktarbú heimsótt og horft á flotta gæðinga á...
30. janúar 2012
Aðalfundur Dreyra var haldinn síðastliðið miðvikudagskvöld og var mæting á fundinn með ágætum. Fjöldi nýrra félaga gekk í félagið og hefur fjölgað frá því í fyrra. Skýrslur nefnda voru góðar og sýna að gott starf er í Dreyra. Stefán Gunnar Ármannsson var kjörinn ný formaður og Valdimar Ólafsson varaformaður. Á fundinum fór fram kosning um nýtt nafn á félagsheimilið og var kosið á milli 5 naf...
29. janúar 2012
Gullmót KR verður haldið helgina 10.-12. febrúar í 50 m braut í Laugardalslaug. Þetta er jafnframt fyrsta gistimót tímabilsins og verður gist og borðað í Laugalækjarskóla sem er um 100m frá lauginni. Frá Akranesi fara sundmenn fæddir 2002 og fyrr og okkur vantar duglega fararstjóra til að koma með og halda utan um hópinn. Það er hægt að skipta með sér verkum og bjóða sig fram t.d. frá föstudeg...
28. janúar 2012
Bárumótið 2012 fór fram í Bjarnalaug í gær og tóku um 50 sundmenn fæddir 2000-2004 þátt. Keppnin var skemmtileg og mjög gaman að sjá hversu mikið ungu sundmennirnir okkar eru að bæta sig. Þá var keppnin um Bárubikarinn æsispennandi en einungis munaði 6 FINA-stigum* á milli tveggja efstu strákanna og einu FINA-stigi á milli tveggja efstu stelpnanna. Brynhildur Traustadóttir er Bárumótsmeistar...
27. janúar 2012
Hnefaleikafélag Akraness heldur stóra hnefaleikakeppni í febrúar þar sem við tökum á móti liði frá Danmörku. Við leitum að styrktaraðilum fyrir keppnina. Í boði verður að styrkja einstaka leiki. Hér er gott tækifæri til að styrkja unga og efnilega íþróttamenn. Keppendalisti verður birtur innan skamms og því kjörið að styrkja þá sem þið þekkið og eiga það skilið. Áhugasömum er bent á að hafa samban...
25. janúar 2012
Kvenna lið ÍA vann ÍFH í 8 liða úrslitum bikarkeppni KLÍ sem fór fram í gær. ÍA konur unnu leikinn 3-0 og eru því komnar áfram í undanúrslit.
25. janúar 2012
Skúli Freyr Sigurðsson keilumaður frá Akranesi stóð sig mjög vel á Reykjavíkurleikunum sem fram fóru um helgina. Skúli vann allar sínar viðureignir á mótinu, nema gegn Róbert Anderson frá Svíþjóð sem fyrir þremur árum varð heimsmeistari í tvímenningi. Skúli vann í keppni um annað sætið einn af betri kvenspilurum í Evrópu, Rebekku Larsen frá Svíþjóð, en áður hafði hann unnið í keppni um þriðja sæ...
24. janúar 2012
Helgina 20.-22. janúar fór hópur sundmanna frá Sundfélagi Akraness á fyrsta sundmót ársins í Laugardalslaug í Reykjavík. Sundmótið var hluti af Reykjavíkurleikunum og þurftu sundmenn að ná lágmörkum til að geta keppt. Nú er hafin keppni í 50m braut en sundtímabilið, sem er frá ágúst til júlí ár hvert, skiptist jafnan þannig að frá ágúst til desember er keppt í 25m braut og frá janúar til júlí ...
24. janúar 2012
Framkvæmdastjórn ÍA hefur nú greitt aðildarfélögum sínum styrk að upphæð kr. 5 milljónir. Þessir fjármunir eru afrakstur af þrekstarfsemi ÍA sem og skipting á hlutdeild ÍA í Lottó tekjum. Styrkurinn kemur án ef í góðar þarfir í því fjölbreytta íþróttastarfi sem fram fer innan vébanda ÍA. Íþróttabandalag Akraness hvetur Skgagamenn til að vera áfram duglegir að sækja líkamsræktina og spila í Lottó o...
23. janúar 2012
Föstudaginn 27. janúar verður Bárumótið í sundi haldið í Bjarnalaug. Þetta er árlegt innanfélagsmót sem haldið er til minningar um Báru Daníelsdóttur og er fyrir 8-12 ára krakka í Sundfélagi Akraness. Allir keppa í 50m skriðsundi og 50m bringusundi og fá í lok móts viðurkenningu fyrir þátttökuna. Einnig verður stigahæsta sundfólkið verðlaunað með Bárubikurunum sem eru farandgripir. Árangurinn...
22. janúar 2012
Nú var að klárast badmintonhluti Reykjavíkurleikanna og átti Badmintonfélag Akraness marga þátttakendur á því móti. Allir stóðu sig vel og margir spiluðu sig inn í undanúrslit og þaðan inn í úrslit sem leikin voru í dag. Þar bar hæst árangur Andra Snæs Axelssonar sem lenti í 2. sæti í öllum greinum í u-13 flokki. Hann beið lægri hlut fyrir Bartal Poulsen frá Færeyjum í öllum greinunum. Andri Snæ...
22. janúar 2012
Skúli Freyr Sigurðsson KFA er nú að keppa til úrslita á R.I.G Hægt er að sjá beina útsetningu frá mótinu hér
21. janúar 2012
Nú standa yfir Reykjavík International Games þar sem keppt er í ýmsum íþrótta greinum þ.m.t keilu. Keilufélag Akranes á nokkra fulltrúa á mótinu sem hafa staðið sig mjög vel. Skúli Sigurðsson þar fremstur í flokki en hann er í fyrsta sæti eftir tvær umferðir. Kristján þórðarson er í fimmta sæti og aðrir skagamenn eru þar á eftir, Staðan eftir tvær umferðir má sjá hér. Mótinu líkur á sunn...
20. janúar 2012
Í dag hefjast Reykjavíkurleikarnir 2012 eða RIG eins og þeir eru jafnan kallaðir. Á leikunum er keppt í ýmsum íþróttagreinum. Sundmótið fer fram í Laugardalslaug í 50 metra braut. Þetta er fyrsta sundmót ársins og jafnfram fyrsta sundmót tímabilsins í 50 m braut og verður spennandi að fylgjast með árangrinum. Til að geta keppt á mótinu þarf að ná lágmörkum og sendir Sundfélag Akraness hóp ke...
16. janúar 2012
Aðalfundur hestamannafélagsins Dreyra verður haldinn miðvikudaginn 25. janúar n.k, kl: 20 í félagsheimilinu á Æðarodda. Á dagskrá eru hin venjubundnu aðalfundarstörf, þar sem m.a verður kosin ný stjórn og einnig verður kosið um nafn á félagsheimilið. Stjórn Dreyra hvetur félaga sína til að fjölmenna , taka þátt í fundinum og í nefndarstarfi komandi starfsárs. Minnum líka á fræðslufy...
16. janúar 2012
VESTURLANDSSÝNING Í FAXABORG Borgarnesi laugardaginn 24. mars 2012 kl. 20:00 www.faxaborg.is Fulltrúar hestamannafélaga á Vesturlandi og Hrossaræktarsambands Vesturlands efna til sýningar. Vesturlandssýning var haldin í fyrsta skipti í fyrra vor í Faxaborg og má segja að það hafi verið endurvakning á sýningum sem voru haldnar fyrir mörgum árum af Vestlendingum í Víðidalnum og í Kópavo...
14. janúar 2012
Sundkonan Inga Elín Cryer var í gærkvöldi kjörin Íþróttamaður Akraness fyrir árið 2011. Önnur í kjörinu varð karatekona ársins Aðalheiður Rósa Harðardóttir, í þriðja sæti varð Íþróttamaður Akraness undanfarinna ára Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni. Inga Elín átti virkilega gott sundár og vann til margra verðlauna bæði á alþjóðlegum vettvangi og hér heima. Hún varð tvöfaldur Norðurl...
13. janúar 2012
Sundkonan Inga Elín Cryer var í kvöld kjörin Íþróttamaður Akraness fyrir árið 2011. Önnur í kjörinu varð karatekona ársins Aðalheiður Rósa Harðardóttir, í þriðja sæti varð Íþróttamaður Akraness undanfarina ára Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni. Inga Elín átti virkilega gott sundár og vann til margra verðlauna bæði á alþjóðlegum vettvangi og hér heima. Hún varð tvöfaldur Norðurlandamei...
13. janúar 2012
Í gær 12. janúar var fyrsta skóflustunga tekin fyrir vélaskemmu GL. Jón Ármann Einarsson sá um það vandasama verk. Þar með er formlega hafin bygging á vélaskemmu GL . Um er að ræða rúmlega 500m2 vélaskemmu, húsið sjálft er frá Smellinn hf á Akranesi og er áætlað að steypu á einingunum ljúki um næstu mánaðamót. Byggingarnefnd GL undir styrkri stjórn Halldórs Hallgrímssonar hefur unnið ötul...
11. janúar 2012
Reiðnámskeiðið er með Torunni Hjelvik og hefst 23. janúar. Um er að ræða 8 tíma námskeið. Möguleiki er að fá einka- eða hópatíma. Einkatími, hver tími er 30 mín og kostar námskeiðið 24.000 kr Tveir í hóp, hver tími er 40 mín og kostar námskeiðið 16.000 kr Þrír í hóp, hver tími er 40 mín og kostar námskeiðið 11.500 kr Fjórir í hóp, hver tími er 40 mín og kostar námskeiðið 8.000 kr Námskeið...
11. janúar 2012
Á morgun fimmtudaginn 12. janúar kl 20:30 verður haldinn fundur Skvísanna í Dreyra. Á fundinum verður vetrarstarf Skvísanna kynnt sem verður með mjög fjölbreytu sniði. Þá verður peysu mátun og létt spjall á eftir. Hvetjum allar stelpur/konur/skvísur/gellur til að mæta. kv Skvísunefndinn
10. janúar 2012
Kjörið á Íþróttamanni Akraness fyrir árið 2011 fer fram föstudaginn 13. janúar n.k. kl: 17:30 í Bíóhöllinni. Öllum er velkomið að koma og fylgjast með kjörinu. Veittar verða viðurkenningar til þeirra sem sigrðu á Íslands- eða bikarmótum á árinu 2011, en alls eignuðumst við um 117 meistara í 13 íþróttagreinum á árinu. Kjörinu á Íþróttamanni Akraness fyrir árið 2011 verða síðan gerð góð skil. E...
10. janúar 2012
Höttur kom í heimókn á Akranesið og er óhætt að segja að þeir hafi farið fýluferð. ótrúlega flottur leikur hjá skagamönnum sem endaði 79 -63 sem lofar góðu fyrir árið. Alltaf gott að byrja árið á sigri. Í liði heima manna var Sigurður R. Sigurðsson stigahæstur með 21 stig og komu Hörður Nik. með 14 stig og T. Watson 12 stig! Glæsilegt hjá strákunum ! Glæsilegur sigur liðsheildarinnar!
9. janúar 2012
Eigum nokkur laus pláss fyrir börn fædd árið 2006, 2007 og 2009. Það er orðið fullt í hópana fædda árin 2010 og 2008. Við erum í íþróttahúsinu að Vesturgötu á laugardagsmorgnum. Nánari upplýsingar gefur: Heiða adalheidur.thrainsdottir@akranes.is og Imba 8625367@gmail.com Hlökkum til að sjá ykkur:-)
9. janúar 2012
Nú um áramótin fá nemendur sem eru í 8. bekk og verða 14 ára á árinu leyfi til að nota þreksalina í íþróttamannvirkjunum sér til heilsubótar. Okkur er umhugað um að byrjendur fái jákvæð fyrstu kynni af þjálfun í sölunum og hafi kost á leiðsögn um hvernig skynsamlegt er að byrja og nýta það sem í boði er. Við höfum því fengið hann Dean Martin þrekþjálfara til að vera í þreksalnum á Jaðarsbökkum og ...
7. janúar 2012
Fyrsti leikur ársins 2012 í körfunni. Enginn leikur í enska. Flugeldasýning frá 1. mínútu. Það er út í hött að mæta ekki.
5. janúar 2012
Æfingar byrja skv. nýrri stundatöflu mánudaginn 9.janúar 2012. Nýja stundataflan er komin inn á síðuna, endilega kíkið á stundatöfluna og finnið hóp við ykkar hæfi ! Hlökkum til að sjá ykkur !
4. janúar 2012
Því miður frestast kjörið á íþróttamanni Akraness fyrir árið 2011 um óákveðinn tíma. Ný tímasetning verður auglýst fljótlega. Málið er að þrettándagleðin sem Akraneskaupstaður hefur umsjón með hefur verið færð fram á fimmtudaginn nk. Sá tími setti okkur hjá ÍA í afar erfiða stöðu varðandi kjörið á Íþróttamanni Akraness þar sem tvær af okkar helstu kandídötum verða ekki til staðar. Á fimmtdagskvöld...
3. janúar 2012
Kraftlyftingafélag Akraness hefur valið Einar Örn Guðnason sem kraftlyftingamann Akraness 2011. Einar Örn hefur keppt á fjórum mótum á árinu: Íslandsmeistaramótinu í bekkpressu, íslandsmeistaramótinu í kraftlyftingum, bikarmóti í kraftlyftingum og evrópumeistaramóti unglinga í kraftlyftingum sem fram fór í Northumberland á Englandi. Á árinu hefur Einar sett 17 íslandsmet í bæði unglinga- og opnum...