Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Sá sem setur sig í spor annarra er góður hlustandi

 

Vefir aðildarfélaga
17. maí 2012
Aðalfundur verður haldinn Fimmtudagin 24 Mai n.k Staðsetning verður auglýst síðar. Dagskrá: 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara. 2. Skýrsla stjórnar. 3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis. 4. Stjórnarkosning. 5. Önnur mál. Staðsetning verður auglýst síðar.
17. maí 2012
Í kvöld fimmtd. 17 maí leikur 2.fl karla hjá ÍA sinn fyrsta leik Íslandsmótinu þegar þeir mæta liði Breiðabliks en leikurinn hefst kl. 20.00 og fer fram í Kórnum í Kópavogi. Strákarnir hafa æft vel í vetur og nýlega hafa þeir leikið æfingaleiki gegn Fylki og Aftureldingu þar náðst hafa fín úrslit.Þjálfari liðsins er Jón Þór Hauksson en við heyrðum í honum og tókum á honum púlsinn fyrir fyrsta lei...
16. maí 2012
Káramenn spila við 2.deildar lið Aftureldingar í kvöld klukkan 20:00 á Varmárvelli í Mosfellsbæ. Káramenn sigruðu KH 6-1 í umferðinni á undan og Afturelding sló út Stál-Úlf 4-1. Með góðum leik og góðum stuðning ættu Káramenn að eiga ágætan séns á fínum úrslitum. Endilega mætið í Mosó og hvetjið lið Kára. Áfram Kári.
16. maí 2012
Laugardaginn 19. og sunnudaginn 20. maí verða vinnudagar við vélaskemmu GL. Verkefnið er að ganga frá þaki og fleira. Byrjað verður að vinna kl. 9:00 vonast er til að sem flestir geti látið sjá sig. Þeir sem geta mætt eru vinsamlegast beðnir að láta vita á póstfangið leynir@simnet.is eða í síma 8607778 Halldór
16. maí 2012
Stelpurnar í mfl. og 2.fl kvenna hjá ÍA standa í ströngu þessa dagana en framundan eru til dæmis þrír leikir hjá þeim á einungis fjórum dögum. Annað kvöld keppir 2.fl kvenna sinn fyrsta leik í Íslandsmótinu gegn liði Þróttara og síðan keppir Mfl. kvenna sína fyrstu tvo leiki um helgina fyrir austan gegn liði Hattar og Fjarðarbyggðar. Við heyrðum af þessu tilefni í Elvari Grétarssyni sem er þjálfa...
16. maí 2012
Bjarni Sveinsson formaður mótanefndar GL fór holu í höggi í gær þriðjudaginn 15. maí. Hann sló drauma höggið á 18. holu. Bjarni notaði 6 járn í höggið. GL óskar Bjarna til hamingju með draumahöggi
15. maí 2012
Skagamenn tróna á toppi Pepsideildarinnar með fullt hús stiga eftir fyrstu þrjár umferðirnar en í kvöld unnu þeir 0-1 útisigur á liði Fylkismanna. Sigurmarkið skoraði Ólafur Valur Valdimarsson á 76 mín leiksins en varamarkvörðurinn Árni Snær Ólafsson var annars hetja liðsins í kvöld þegar hann varði glæsilega víti um miðjan seinni hálfleikinn frá sóknarmanni Fylkis.Byrjunarlið ÍA var þannig skipa...
14. maí 2012....
Skriðsund er skemmtilegt og hratt sund sem gaman er að kunna. Álag á bak og liði er minna en í bringusundi og um leið styrkir sundaðferðin axlir og bak. Á námskeiðinu verður farið í grunnatriði skriðsundins, flot, öndun, líkamslegu, handatök og fótatök. Áhersla verður lögð á: · Flot og líkamslegu í vatninu · Öndun til hliðar · Samræmingu handa- og fótataka K...
14. maí 2012....
Um helgina fór fram Landsbankamót ÍRB og átti Sundfélag Akraness nokkuð marga keppendur þar. Á föstudeginum kepptu krakkar sem eru fæddir 2004 á sínu fyrsta stórmóti og stóðu sig mjög vel. Eftir keppni tóku þau þátt í skemmtilegum sjóræningjaleik og uppskáru þátttökuverðlaun í lokin. Á laugardag og sunnudag kepptu sundmenn 9 ára og eldri og voru flestir að bæta sig. Krakkarnir unnu til margr...
14. maí 2012....
Á dögunum var haldið Íslandsmeistaramót í 5 km sundi í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Inga Elín Cryer tók þátt og sigraði á frábærum tíma 1:01.37,00. Inga og sigurvegarinn í karlaflokki Anton Sveinn McKee úr Sundfélaginu Ægi (synti á 57.39,03) unnu sér inn keppnisrétt á Evrópumeistaramótinu í víðavatnssundi sem fer fram í Piombino á Ítalíu 12.-16. september.