Íþróttabandalag Akraness
Stofnað 1946 - 65 ára
Minnka letur
Stækka letur

Ný tækifæri fást ekki aðeins í upphafi nýs árs heldur blasa þau við okkur á hverjum morgni þegar við vöknum.

Vefir aðildarfélaga
5. febrúar 2012
Íslandsmót Unglinga verður haldinn í Selfoss 11-12/02. Skipulagið má finna her: http://www.fimleikasamband.is/node/894
5. febrúar 2012
Hnefaleikafélag Akraness heldur stóra hnefaleikakeppni í febrúar þar sem við tökum á móti liði frá Danmörku. Við leitum að styrktaraðilum fyrir keppnina. Nú þegar hafa strákarnir okkar fengið styrki fyrir fimm leikjum, 10.000 kr fyrir hvern leik. Styrktaraðilarnir verða gefnir upp síðar. Hér er gott tækifæri til að styrkja unga og efnilega íþróttamenn. Keppendalisti verður birtur innan skamms og ...
5. febrúar 2012
Skagastrákarnir stóðu sig ágætlega á hnefaleikamóti hjá H.R. (Hnefaleikafélag Reykjavíkur) í gærkvöldi þótt sigrarnir hefðu gjarnan mátt vera fleiri. Afmælisbarnið Eyþór Helgi Pétursson (60kg) fór upp um tvo þyngdarflokka en mátti lúta í lægra haldi fyrir andstæðing sínum 2-1. Sigurinn hefði allt eins getað lent Eyþórs megin en dómararnir sáu þetta svona. Marinó Elí Gíslason Waage tapaði 2-1 f...
4. febrúar 2012
Keilufélag Akraness var sigursælt á Meistarakeppni Ungmenna í keilu sem fram fór í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð laugardaginn 4.febrúar. KFA átti keppendur í 6 flokkum og lentu ungmennin á verðlaunapall í þeim öllum og fékk félagið 4 gull, 1 silfur og 2 brons. Í 4.flokki pilta náði Ólafur Ólafsson 3.sæti, í 3.flokki stúlkna náði Jóhanna Guðjónsd...
4. febrúar 2012
Skagamenn mættu liði ÍBV í dag í leik um 5. sætið í fotbolti.net mótinu en leikurinn fór fram í Akraneshöllinni. Óhætt er að segja að um flugeldasýningu hafi verið að ræða en 10 mörk litu dagsins ljós. Skemmtu fjölmargir áhorfendur sér vel á leiknum þó þjálfurum liðanna hafi væntanlega ekki þótt varnarleikurinn upp á marga fiska. Byrjunarlið heimamanna var þannig skipað að: Páll Gísli var í marki...
4. febrúar 2012
Á síðu Sundskólans Fjörfiska, sem rekinn er af Sundfélagi Akraness, er nú að finna tvö myndbönd sem sýna hvernig starfið þar fer fram. Heimasíða Sundskólans Fjörfiska
4. febrúar 2012
Skagamenn hafa komist að samkomulagi við Kára Ársælsson um að leika með liðinu en frá þessu var gengið formlega nú í morgunsárið í Íþróttamiðstöðinni að Jaðarsbökkum. Samningurinn við Kára er til 2ja ára og eru þetta mikil ánægjutíðindi fyrir klúbbinn enda Kári öflugur leikmaður sem á eftir að styrkja liðið mikið og auka breiddina í öftustu víglínu. Kári er 26 ára gamall varnarmaður sem lengst af...
3. febrúar 2012
Í gærkvöldi fór fram leikur í 8 liða úrslitum Bikarkeppni K.L.Í þar sem ÍA mætti KR-A. Fór leikurinn fram í Keilusal Akraness og er óhætt að segja að spennan hafi verið í aðalhlutverki. Skagamenn töpuðu fyrsta leik en unnu svo næsta og var þá orðið ljóst að þessi viðreign þyrtti að lágmarki fjóra leiki til að fá úrslit. Þriðja leikinn unnu svo ÍA og var ÍA þá kominn með tvo sigra og þurti þá að ...
3. febrúar 2012
Hnefaleikafélag Akraness teflir fram þremur keppendum á móti hjá H.R. (Hnefaleikafélag Reykjavíkur) laugardagskvöldið 4. febrúar. Það eru þeir Eyþór Helgi Pétursson (60kg), Guðmundur Bjarni Björnsson (80+ kg) og Marinó Elí Gíslason Waage (63kg). Keppnin fer fram í húsnæði H.R. í Mjölnishúsinu og hefstu klukkan 20.00. Þessi keppni verður ágætis undirbúningur fyrir strákana fyrir stóru keppnina sem...
3. febrúar 2012
Á morgun munu Skagamenn leika um 5. sætið í fotbolti.net mótinu og í senn sinn síðasta leik í mótinu sjálfu. Leikurinn fer fram í Akraneshöllinni, hefst hann kl 12.00 og eru allir Skagamenn hvattir til að fjölmenna á leikinn og styðja sína menn.