Fréttir ÍA - 8. febrúar 2010

Aðalfundur KFÍA 11. febrúar

Aðalfundur Knattspyrnufélags ÍA verður haldinn fimmtudaginn 11. febrúar kl. 20:00.  Um er að ræða framhaldsaðalfund en á aðalfundi sem haldinn var í nóvember voru afgreiddar lagabreytingar og kosning stjórnar.  Þeir liðir helstir sem festað var til febrúar eru skýrsla stjórnar, fjárhagsáætlun ársins 2010 og ársreikningar félagsins.  Á aðalfundinum á fimmtudag verður m.a. kynntar nýjungar á heimasíðu félagsins, sem þeir Brandur Sigurjónsson og Kristleifur Brandsson hafa unnið að.  Þá er unnið að því að kynna til sögunnar nýjan aðalstryktaraðila félagsins - en vonandi verða mál hvað það varðar klár fyrir fimmtudaginn.  Á næstu dögum verða helstu tölur ársreiknings og fjárhagsáætlunar kynntar hér á síðunni.  Félagsfólk er hvatt til að fjölmenna á aðalfundinn.

Fréttir Ungmennafélagið Skipaskagi - 8. febrúar 2010

Uche bætti sig í 800m hlaupi

 Uche keppti á sínu fyrsta frjálsíþróttamóti fyrir hönd USK núna um helgina.  Hann keppti í 800 m hlaupi á Meistaramóti Íslands. og hljóp á 2mín 10.14sek sem var mikil bæting hjá honum.

UKÍA - 8. febrúar 2010

PAPPÍRSSALA KFÍA

 

PAPPÍRSSALA  KFÍA

Óskað er eftir að foreldrar/iðkendur í öllum flokkum Knattspyrnufélags ÍA leggi sig fram um sölu á salernis- og eldhúspappír til styrktar félaginu og iðkendum sjálfum.   Eins og áður skulu teknar minnst 3 pakkningar eða fleiri eins og hver óskar.

Breyting frá fyrri sölu er sú að sem hvati til aukinnar sölu, fær iðkandi hagnað af annarri hverri pakkningu umfram lágmark (4., 6., 8. etc.) til lækkunar á æfingargjöldum sínum (Hagnaðurinn er um 1.000 á pakkningu).

Verð á pakkningu, salernis eða eldhúspakkning, er 3.500 kr.

Staðgreiðsla vörunnar skal vera með korti/peningum þegar varan er sótt.

Afhending vörunnar og greiðsla fer fram í Bíláshúsinu, Smiðjuvöllum 17:

Þriðjudaginn 9. Febrúar frá kl: 16-18.

Tengiliður er Lárus s. 8983614.

 

ATH.: Afhenting á stuttbuxum og sokkum til iðkenda fer fram á sama tíma. (Gjöf)

ATH: Lokadagur skila á ávísun uppí æfingargjöld er 15.febrúar (vegna jan-apr)

 

Uppeldissvið Knattspyrnufélags ÍA.

Fréttir Dreyri - 8. febrúar 2010

KB- mótaröðin í Borgarnesi í vetur

KB mótaröðin í reiðhöllinni í Borgarnesi.  

 

Liðakeppni (lágmark 3 í liði – opin keppni)

Einstaklingskeppni (opin keppni)

 

Barna-, unglinga-, ungmenna-, 1.flokkur, 2.flokkur (minna keppnisvanir)

Mótadagar:

 

13.febrúar            Fjórgangur

13.mars                Tölt

27.mars                Gæðingakeppni í gegnum höllina

 10.apríl                 Tölt og fimmgangur

 

Sjá nánar hér:

 

Fréttir ÍA - 2. febrúar 2010

Lífshlaupið hefst á morgun

 Lífshlaupið verður ræst á morgun, miðvikudaginn 3.febrúar kl. 11:00 í Sjálandsskóla í Garðabæ. Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ, Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra og Margrét Björnsdóttir forstjóri Lýðheilsustöðvar munu flytja stutt ávörp og að því loknu mun Andrés Guðmundsson ræsa Lífshlaupið formlega með laufléttri og skemmtilegri Lífshlaupsþraut sem ráðherrar og fleiri munu spreyta sig á. Skráning í Lífshlaupið hefur gengið vel og nú þegar hafa 469 lið frá 220 fyrirtækjum og 153 bekkir frá 23 grunnskólum skráð sig til leiks. Hægt verður að skrá sig til leiks allt fram til 23.febrúar 2010 inná vef Lífshlaupsins www.lifshlaupid.is.   

Skotfélag Akraness - 1. febrúar 2010

Sænska mótið

Fjórða umferð - árangur SKA kominn á úrslitasíðuna.  Staðan spennandi.  Jón Arnar efstur en Berglind sækir fast á.  Aðeins 1.3 stig ber í milli.  Guðmundur og Kristján Ingi fylgja þeim fast eftir og allt getur gerst í næstu umferðum. 

Íþróttabandalag Akraness, Íþróttamiðstöðinni Jaðarsbökkum, Sími: 895-1278